157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja.

587. mál
[14:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja. Frumvarpið innleiðir tvær Evrópugerðir um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja. Í megindráttum eru varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja aðskildar frá varfærniskröfum til lánastofnana. Með því móti er betur tekið mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig og unnt er að hafa einfaldari og markvissari löggjöf fyrir verðbréfafyrirtæki.

Í frumvarpinu felst að gerðar eru lágmarkskröfur um eigið fé og laust fé verðbréfafyrirtækja sem ætlað er að treysta viðnámsþrótt fjármálakerfisins og taka á sama tíma mið af umfangi starfseminnar. Settar eru reglur um stjórnarhætti og starfskjör verðbréfafyrirtækja. Mælt er fyrir um birtingu upplýsinga af hálfu verðbréfafyrirtækja og kveðið er á um eftirlit Fjármálaeftirlitsins, þar á meðal heimildir til að krefjast aukins eigin fjár eða lauss fjár og til að leggja á sektir vegna brota.

Í helstu atriðum endurspeglar frumvarpið ákvæði Evrópugerðanna. Þó er lagt til að stærri verðbréfafyrirtækjum verði áfram skylt að viðhafa innri endurskoðun þar sem hún er talin veigamikill liður í því að treysta áhættustýringu og stjórnarhætti verðbréfafyrirtækja. Einnig er lagt til að breytileg laun stærri verðbréfafyrirtækja verði óbreytt frá því sem nú gildir eða að hámarki 25% af föstum launum, þótt það sé ekki áskilið í Evrópugerðunum, og að áfram verði óheimilt að greiða stjórnarmönnum þeirra breytileg laun.

Sjö verðbréfafyrirtæki eru nú starfandi á Íslandi. Á heildina litið er lagasetningin talinn draga úr reglubyrði þeirra án þess þó að koma niður á viðnámsþrótti fjármálakerfisins, enda felur hún í sér að þau falli undir lagaramma sem er sérsniðinn að þeim fremur en regluverk sem tekur einkum mið af starfsemi lánastofnana. Talið er að eitt eða tvö verðbréfafyrirtæki kunni þó að þurfa að auka eigið fé sitt til að mæta nýjum kröfum.

Forseti. Innleiðing Evrópugerðanna er liður í því að uppfylla skyldur samkvæmt EES-samningnum og greiða fyrir þátttöku íslenskra fyrirtækja á hinum sameiginlega markaði Evrópska efnahagssvæðisins.

Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.