framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029. Tillagan er lögð fram í samræmi við 7. gr. laga um málefni innflytjenda nr. 116/2012 þar sem kveðið er á um að ráðherra skuli leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára í senn að fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Vinnumálastofnunar og innflytjendaráðs.
Á gildistíma framkvæmdaáætlunarinnar í málefnum innflytjenda fyrir árin 2022–2025 var framkvæmt ítarlegt stöðumat og greining á hvaða aðgerðir á sviði innflytjendamála væru brýnastar til að stefna að þeim markmiðum sem framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda er ætlað að ná fram. Einnig var birt grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks í nóvember 2023 og hvítbók í maí 2024. Samhliða vann Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, ítargreiningu á stöðu innflytjenda á Íslandi sem birt var 4. september 2024. Við mótun aðgerða í framkvæmdaáætluninni var byggt á framangreindri vinnu auk annarra gagna og er í áætluninni kveðið á um verkefni sem hafa það að markmiði að stuðla að samfélagi þar sem allir einstaklingar geta verið virkir þátttakendur, óháð þjóðerni og uppruna. Drög að tillögu til þingsályktunar voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2026 og bárust alls tíu umsagnir um tillöguna sem teknar voru til skoðunar við lokavinnslu hennar.
Virðulegi forseti. Framkvæmdaáætlunin inniheldur alls 24 aðgerðir og byggir á fimm stoðum um íslenskunám og notkun tungumálsins í daglegu lífi, mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði, upplýsingaþjónustu fyrir innflytjendur, samfélagsfræðslu og þátttöku, viðkvæma hópa og tölfræði og rannsóknir. Undir hverri stoð eru lagðar til aðgerðir til að ná fram markmiðum hverrar stoðar.
Í stoð um íslenskunám og notkun tungumálsins í daglegu lífi er að finna aðgerðir þar sem áhersla er lögð á að færni í íslensku sé lykill að samfélaginu á sama tíma og samfélagið sé lykill að tungumálinu. Aðgerðir sem snúa að námi, kennslu og notkun íslensku sem samskiptamáls byggja á að gæði námsins séu tryggð og að aðgengilegt og sveigjanlegt nám sé í boði um allt land. Þá sé mikilvægt að skilningur ríki í garð þeirra sem eru að læra íslensku og að hvatt sé til notkunar íslensku í samskiptum innflytjenda og innlendra.
Í stoð um mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði er að finna aðgerðir sem hafa það að markmiði að styrkja stöðu innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði og er áhersla lögð á mat á menntun og starfsreynslu til starfsréttinda hér á landi. Einnig er lögð áhersla á jöfnun tækifæra og fræðslu um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
Í stoð um upplýsingaþjónustu, samfélagsfræðslu og þátttöku er að finna aðgerðir þar sem áhersla er lögð á fjölbreytta upplýsingaþjónustu, fræðslu um menningarnæmi og samfélagslegan ávinning af jafnri stöðu íbúa, óháð uppruna, og tækifærum til lýðræðisþátttöku.
Í stoð um sérstaklega viðkvæma hópa er að finna aðgerðir þar sem lögð er áhersla á félagslegt öryggi, velferð og stuðning við þá hópa innflytjenda sem standa höllum fæti. Sérstaklega er litið til þess að draga úr fátækt meðal innflytjenda og þá er lögð áhersla á að stuðningur við flóttafólk miði við að hjálpa fólki að ná rótfestu í samfélaginu og horft verði til eflingar sálræns stuðnings og meðferðar við áfallastreituröskun.
Í stoð um tölfræði og rannsóknir er að finna aðgerðir þar sem áhersla er lögð á að efla og bæta tölfræði um innflytjendur og efla miðlun og hagnýtingu rannsókna á sviði innflytjendamála.
Virðulegi forseti. Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir hröðum lýðfræðilegum breytingum þar sem hlutfall innflytjenda af heildaríbúafjölda hefur vaxið hraðar hér en í nokkru öðru aðildarríki OECD. Það hefur í för með sér ýmsar áskoranir á ólíkum sviðum og er markmið framkvæmdaáætlunarinnar, sem ég hef hér gert grein fyrir, að samhæfa aðgerðir í ólíkum málaflokkum og þar með tryggja sem bestan stuðning jafnt við innflytjendur sjálfa sem og þá innviði sem þarf til að efla inngildandi samfélag. Ég tel áætlunina í senn metnaðarfulla og raunhæfa og rétt er að nefna að kostnaður við þær aðgerðir sem ég hef hér kynnt rúmast innan fjárheimilda.
Að lokum legg ég til að tillögunni til þingsályktunar verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni umræðu.