nálgunarbann og brottvísun af heimili.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr. 85/2011, rafrænt eftirlit o.fl.
Með frumvarpinu er lagt til að bæta við lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili ákvæðum sem heimila lögreglu að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili. Þá er lagt til að fallið verði frá þeirri kröfu að ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili sé tekin af lögreglustjóra eða fulltrúa hans á heimilisvarnarþingi brotaþola. Þá eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, til samræmis við viðurlög við brotum gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega: Með rafrænu eftirliti samkvæmt frumvarpinu er átt við þau tilvik þegar manni, sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, er gert að hafa á sér staðsetningarbúnað svo unnt sé að sannreyna að hann hlíti þeirri ákvörðun. Heimilt verður að beita slíku rafrænu eftirliti ef grunur er um að sakborningur, sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, muni brjóta gegn slíkri ákvörðun og rafrænt eftirlit því nauðsynlegt til að tryggja að ákvörðunin verði virt. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ákvæði um nálgunarbann og brottvísun af heimili hafi hingað til ekki þótt veita þolendum ofbeldis nægilega vernd ein og sér og vísbendingar séu um að erfitt hafi reynst að sanna brot gegn slíkum ákvörðunum með tilheyrandi afleiðingum fyrir brotaþola en án afleiðinga fyrir sakborning.
Að því virtu telur meiri hlutinn að rafrænt eftirlit sé nauðsynlegt úrræði til að bregðast við þeim áskorunum sem fylgt hafa nálgunarbanni og brottvísun af heimili í framkvæmd og sé til þess fallið að bæta sönnunarfærslu í tengslum við brot gegn ákvörðunum um nálgunarbann og brottvísun af heimili með það að markmiði að auka vernd brotaþola.
Umsagnaraðilar tóku almennt undir markmið frumvarpsins og töldu mikilvægt að auka vernd brotaþola sem og að koma á skilvirkari framkvæmd laganna. Einkum komu fram ábendingar í umsögnum sem snúa að innleiðingu og eftirfylgni verði frumvarpið að lögum. Landssamtökin Þroskahjálp bentu á nauðsyn þess að gæta að því að tekið verði mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Persónuvernd benti á að beiting rafræns eftirlits verði ávallt að vera í samræmi við meginreglur persónuverndarlöggjafar. Þá bentu Kvenréttindafélag Íslands og Stígamót á að við framkvæmd laganna verði að tryggja að brotaþolar verði upplýstir um mál sín og um rétt til að krefjast nálgunarbanns. Þá sé nauðsynlegt að veita fræðslu til fagaðila og þeirra sem líkleg eru til að vera í samskiptum við brotaþola, svo sem starfsfólk bráðamóttöku og lögreglu.
Fyrir nefndinni komu jafnframt fram ábendingar varðandi þær kröfur sem gerðar eru til beitingar nálgunarbanns og brottvísunar af heimili samkvæmt gildandi lögum. Í umsögn Bjarkarhlíðar var bent á að ákveðin hætta sé á því að þær kröfur sem gerðar eru til nálgunarbanns og brottvísunar af heimili kunni að aukast enn frekar þar sem rafrænt eftirlit yrði líklegast talið verulega íþyngjandi ráðstöfun gagnvart sakborningi. Með tilliti til núverandi framkvæmdar laganna væru líkur á að hár þröskuldur fylgdi úrræðinu og hætta á að úrræðið nái þar með ekki markmiði sínu um að vernda brotaþola, nema í allra alvarlegustu tilvikunum. Í því ljósi þurfi að gæta að því að rafrænt eftirlit leiði ekki til minni réttarverndar brotaþola. Í umsögn Stígamóta komu fram sambærileg sjónarmið þar sem bent var á að hingað til hafi verið torsótt að fá nálgunarbann og að það hafi jafnvel ekki veitt það skjól sem til var ætlast. Þá tóku Barnaheill undir umsagnir Bjarkarhlíðar og Stígamóta og bentu jafnframt sérstaklega á rétt barna til að njóta verndar gegn öllu ofbeldi.
Meiri hlutinn hefur skilning á framangreindum sjónarmiðum og undirstrikar að heimild til að beita rafrænu eftirliti eigi ekki að verða til þess að gerðar verði auknar kröfur fyrir beitingu verndarúrræða á grundvelli laganna. Meiri hlutinn undirstrikar að með frumvarpinu sé verið að bregðast við vandkvæðum sem fylgt hafa framkvæmd laganna, svo sem í tengslum við að sanna brot sakborninga gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili.
Meiri hlutinn telur að breytingin muni styrkja sönnunarfærslu vegna brota og geti þar með gert úrræðin virkari og leitt til aukinna varnaðaráhrifa. Með rafrænu eftirliti samkvæmt frumvarpinu sé því ekki ætlunin að auka þær kröfur sem gerðar eru til nálgunarbanns og brottvísunar af heimili heldur að bæta enn frekar vernd brotaþola. Það sjónarmið skal liggja til grundvallar að ábyrgð á heimilisofbeldi og umsáturseinelti eigi að liggja hjá sakborningi en ekki brotaþola.
Meiri hlutinn telur jafnframt ástæðu til að taka tillit til framangreindra ábendinga við endurskoðun fyrirmæla ríkissaksóknara nr. 1/2024, um nálgunarbann og brottvísun af heimili, með það að markmiði að tryggja skilvirka framkvæmd í samræmi við markmið frumvarpsins.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Sandra Sigurðardóttir og Sigurður Örn Hilmarsson.
Frú forseti. Með þessu frumvarpi er lagt til að styrkja vernd brotaþola gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti með því að heimila lögreglu að beita rafrænu eftirliti samhliða nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Með rafrænu eftirliti er samkvæmt frumvarpinu átt við eftirliti í þeim tilvikum þegar manni sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili er gert að hafa á sér staðsetningarbúnað svo unnt sé að sannreyna að hann hlíti þeirri ákvörðun. Skilyrði frumvarpsins svo rafrænu eftirliti verði beitt eru m.a. að grunur sé um að ákvörðun um brottvísun af heimili eða nálgunarbann verði ekki virt og að rafrænt eftirlit teljist nauðsynlegt til að tryggja fylgni við ákvörðunina.
Kveðið er á um skýra heimild lögregluyfirvalda til vinnslu nauðsynlegra persónuupplýsinga í löggæslutilgangi, í samræmi við lög nr. 75/2019, og um reglugerðarheimildir ráðherra til að útfæra framkvæmd, tæknilausnir og skyldur sakbornings sem sætir rafrænu eftirliti. Þá verður og ríkislögreglustjóra heimilt að setja reglur um framkvæmd rafræns eftirlits í þessu skyni. Það er mjög mikilvægt að ekki er gert ráð fyrir að rafrænu eftirliti verði beitt nema fyrir liggi faglegt heildarmat og viðurkennt áhættumat lögreglu þar sem m.a. er litið til ástæðna fyrir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, t.d. hvort stigvaxandi hætta sé á hótunum, áreitni og/eða ofbeldi gagnvart brotaþola. Jafnframt skuli líta til annarra þátta sem gefa til kynna að sakborningur muni ekki hlíta ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, m.a. hvort sakborningur hafi áður brotið gegn slíkum ákvörðunum.
Tilefni lagasetningarinnar er aukinn fjöldi ofbeldismála og endurtekin brot gegn nálgunarbanni sem hafa sýnt að núverandi úrræði veita ekki nægilega vernd. Með rafrænu eftirliti er hægt að bregðast fyrr við hættuástandi og bæta sönnunarfærslu í málum sem varða brot gegn nálgunarbanni og brottvísun.
Ákvæði þessa frumvarps eru líkleg til að auka réttarvernd brotaþola í málum er varða m.a. brot í nánu sambandi og eru mikilvægt skref í baráttunni gegn heimilisofbeldi og kynbundnu ofbeldi. Markmið frumvarpsins er að tryggja öryggi brotaþola, styrkja réttarkerfið og senda skýr skilaboð um að ábyrgðin liggi hjá gerandanum, ekki þolandanum. Hagsmuna þess einstaklings sem sæta þarf rafrænu eftirliti með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili er jafnframt gætt.
Hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttur hefur sagt að það séu ekki mannréttindi að fá að áreita fólk og að ábyrgðin á slíkri háttsemi eigi að hvíla á gerendum en ekki þeim sem fyrir ofbeldinu verða. Með þeim orðum lýk ég, frú forseti, máli mínu.