157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

forsendur þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna.

[15:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra og aðrir talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa lagt mikla áherslu á að þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild að Evrópusambandinu heldur aðeins um það hvort við ætlum að kíkja í pakkann, hvort við ætlum að sækja okkur frekari upplýsingar. Forsætisráðherra hefur meira að segja oftsinnis sagt að það þurfi enginn að vera sérfræðingur í Evrópusambandinu áður en viðkomandi gangi til þeirra kosninga. Þetta er auðvitað þægileg framsetning fyrir ríkisstjórnina en vandinn er sá að þessi framsetning er auðvitað kolröng og slær ryki í augu kjósenda. Í opinberum gögnum frá Evrópusambandinu frá fyrri samningalotu kemur skýrt fram að Ísland þurfi að halda áfram að ná árangri í að samræma löggjöf sína að regluverki sambandsins, innleiða það og tryggja stjórnsýslulega getu til að fylgja því eftir.

Svo hafa stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar reynt að slá þessu öllu upp sem misskilningi og vísað til skýrslu frá 2013 sem var reyndar einhliða frásögn Össurar Skarphéðinssonar, sem þá var utanríkisráðherra, og dregið af henni þá ályktun að engar breytingar á lögum og enginn undirbúningur í stofninum komi til álita fyrr en að lokinni annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Telur forsætisráðherra að það sé heiðarleg framsetning gagnvart almenningi að halda því hér fram að hér sé einungis verið að kjósa um framhald viðræðna þegar fyrir liggur samkvæmt eðli aðildarviðræðna sjálfra, samkvæmt greinargerð ríkisstjórnarinnar og samkvæmt gögnum beint frá Evrópusambandinu að slíkt ferli gengi út á aðlögun að regluverki sambandsins, samræmingu laga og undirbúning stjórnsýslu?