forsendur þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið sem var nú rýrt eins og oft áður og enn einu sinni nefnir hæstv. forsætisráðherra þennan mann í Skagafirði sem langar svo mikið til að kíkja í pakkann. Við erum búin að heyra oft um hann og það er talað um þvælu og hræðsluáróður stjórnarandstöðunnar þegar við erum einfaldlega að spyrja eðlilegra spurninga í einu stærsta máli sem Alþingi Íslendinga ætlar að spyrja íslenska þjóð að. Mig langar þá að þrengja þetta enn frekar því spurningin er í raun mjög einföld: Ef þjóðin segir já í ágúst, hvað þýðir það í reynd? Það er spurningin. Þýðir það bara að við kíkjum í pakkann og ekkert umfram það eða, eins og gögnin staðfesta, að ríkisstjórnin telji sig hafa fengið umboð til að hefja að nýju það ferli að undirbúa Ísland fyrir aðild með vinnu við samræmingu regluverks, lagalegan og stjórnsýslulegan undirbúning og aðlögun að þeim sviðum sem Evrópusambandið gerir kröfu um? Þjóðin á rétt á því að vita hvort verið sé að biðja hana um umboð fyrir óformlegu samtali eða raunverulegu aðildarferli.
Þess vegna spyr ég hæstv. forsætisráðherra einu sinni enn: (Forseti hringir.) Stendur forsætisráðherra að fullu við það sjónarmið að segi þjóðin já í ágúst þá hefjist ekkert ferli hér á landi sem lúti að lagalegri, stjórnsýslulegri (Forseti hringir.) eða pólitískri aðlögun að Evrópusambandinu? Engin aðlögun? Ef svo er, á hvaða frumheimildum byggir sú fullvissa hæstv. forsætisráðherra?
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða takmarkaðan ræðutíma.)