157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

forsendur þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna.

[15:11]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hvað þýðir það í reynd að segja já? Það þýðir að það er búið að sækja umboð til að fara í samninga við Evrópusambandið. Það er það sem þetta snýst um og sem leiðir til þess að við sjáum hvað við gætum fengið í slíkum aðildarviðræðum. Það liggur alveg fyrir og ég spyr bara aftur á móti: Hvaða hræðilega aðlögun hrökk hér í gang þegar við fórum af stað í síðustu viðræður? Hvað átti sér stað hér þegar við fórum af stað síðast sem var ekki óafturkræft? Ég fullyrði það sem ég sagði hér áðan: Fólk þarf ekki að óttast að hér verði gjörbreyting á íslensku samfélagi vegna þess að við erum að fara í viðræður. Hins vegar kann vel að vera að það muni breyta væntingum fólks til framtíðar, fjárfesta og annarra, að við séum að fara í þessa vegferð. Ég ætla ekki að útiloka það en ég verð að segja að þennan hræðsluáróður sem hér er verið að keyra er búið að afhjúpa, fólk er að forðast umræðu um málefnið sjálft. Við getum tekist á um hvort við eigum að fara þarna inn eða ekki en höldum okkur við staðreyndir máls.