157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

undirbúningur og fjármögnun Sundabrautar.

[15:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það hefur gengið hægt við undirbúning Sundabrautar sem flestir sem kynnt hafa sér mál er hana varða átta sig á að er einhver arðsamasta samgönguframkvæmd sem íslensku samfélagi hefur nokkru sinni staðið til boða. Hæstv. innviðaráðherra sagði á Iðnþingi síðastliðið haust að hann sæi fyrir sér að framkvæmdir myndu hefjast árið 2027. Nú er apríl 2026, það er lítið eftir af þessu þingi, sveitarstjórnarkosningar fram undan og þar fram eftir götunum, og ég verð að viðurkenna að ég upplifi svolítið að raunverulegar framkvæmdir við Sundabraut séu álíka fjarri og þegar ég þekkti það mál ágætlega haustið 2006 sem aðstoðarmaður samgönguráðherra á þeim tíma.

Mig langar til að biðja hæstv. innviðaráðherra að fara aðeins yfir hversu raunhæf tímalínan sem hann setti fram síðasta haust er gagnvart framkvæmdum við Sundabraut. Það eru kynningarfundir fram undan næstu þrjá daga í Klébergsskóla, Hótel Nordica og Borgarholtsskóla, ef ég man rétt, þar sem á að fara yfir þetta með íbúum á nærsvæðum Sundabrautar. Það er búið að byggja í veglínunni. Það er búið að byggja upp að veglínunni. Það er búið að selja besta landtökusvæðið undan upphaflegu veglínunni. Hefur eitthvað verið lagt mat á með hvaða hætti það hefur kallað fram kostnað fyrir skattgreiðendur í þessum efnum? Sömuleiðis kom nú fram hér hjá 1. varaformanni fjárlaganefndar í umræðu um fjármálaáætlun í liðinni viku að a.m.k. helmingur verkefna þyrfti að standa undir sér, eins og ég held að það hafi verið orðað, vera sjálfbær. Fjármögnunin, er ekki algerlega óraunhæft að horfa til þess að framkvæmdir á grundvelli heildarútboðs hafi átt sér stað þannig að framkvæmdir geti hafist 2027 miðað við áform ráðherra sem voru uppi hér bara síðasta haust, rétt u.þ.b. þegar þetta þing sem við nú störfum á var að hefjast?