157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

undirbúningur og fjármögnun Sundabrautar.

[15:30]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Undirbúningur fyrir Sundabraut hefur staðið yfir í nokkra áratugi með hléum. Núverandi ferli hófst með samþykkt samgönguáætlunar 2020–2034 á Alþingi og samkomulagi ríkisins og borgaryfirvalda í júlí 2021. Þegar ég tek við lyklunum af fyrrverandi innviðaráðherra í apríl í fyrra segir hann við mig að ég eigi að ákveða hvort það verði jarðgöng eða brú. Það var ekki gert, að sjálfsögðu. Það voru gríðarlega tafir vegna mats á umhverfisáhrifum og sá hluti, undirbúningur framkvæmda, er bara mikið rannsóknarefni, tel ég, allar þessar tafir. Þetta er almennt vandamál, líka úti í heimi.

Samhliða hefur verið unnin viðskiptaáætlun fyrir verkefnið. Þetta er framkvæmd sem verður ekki á fjárlögum. Í maímánuði mun koma álit HMS, Skipulagsstofnunar sem rann inn í HMS, um umhverfismatið og eftir það verður vonandi hægt að kynna málið fjárfestum. Þá þarf að taka ákvörðun um hvort það eigi að vera brú, sem er 30 metra há, eða jarðgöng. Svo þarf að fara í skipulagsferlið. Ég tel alveg raunhæft að þessi tímalína — ég bara vona að þessi tímalína standist. Þegar ég fékk lykla var mér sagt að umhverfismatið yrði klárt í apríl en það var ekki. Það er ekkert mál sem ég hef ýtt jafn mikið á og þetta mál en umhverfismatið er bara ekki alveg í mínum höndum. Það er verið að finna nýjar jurtategundir og guð má vita hvað ekki í þessum umhverfismötum og það tel ég að sé rannsóknarefni. Áætlun um hvernig mat á að fara fram virðist ekki vera virt nægjanlega. Þú gerir áætlun um að gera eitthvað og svo ferðu langt út fyrir þann ramma. Það er sérstakt áhyggjuefni. Ég held að þetta mál eigi að standast tímalínu. Ég geri ráð fyrir því. (Forseti hringir.) Það fer vonandi inn í innviðafélag. Þetta er frekar einfalt verkefni þannig lagað. Umferðin á að borga gjöldin og þá er mikilvægt að framkvæmdin sé hönnuð þannig að sem mestar tekjur sé hægt að fá frá mannvirkinu.