157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

undirbúningur og fjármögnun Sundabrautar.

[15:32]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er auðvitað stórkostlegt að undirbúningsframkvæmdir Sundabrautar séu að ýta undir líffræðilegan fjölbreytileika hér á Íslandi. Kannski skýrir þetta hvers vegna Samfylkingin í Reykjavík er allt í einu farin að tala um Sundabraut sem forgangsverkefni í samgöngumálum, sem er algjör nýlunda, trúið mér. Kannski áttar Samfylkingin í Reykjavík sig á því að það er lengra í að Sundabraut geti orðið að raunveruleika heldur en hæstv. innviðaráðherra er upplýstur um í samtölum þeirra samstarfsaðila í borg og við ríkisstjórnarborðið.

Mig langar að gera aðra atrennu að því að spyrja hæstv. ráðherra hér í seinni fyrirspurn minni: Telur hæstv. ráðherra að framkvæmdir verði hafnar við Sundabraut árið 2027?