undirbúningur og fjármögnun Sundabrautar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni fyrirspurn. Það er bjartsýnt mat að telja að framkvæmdir geti hafist á næsta ári, 2027, en ég er mjög bjartsýnn maður (Gripið fram í.) — já, ég er að segja það, það er bjartsýn tímalína og ég tel að það séu allar líkur á að við getum gert það. Um leið og þetta verður komið í gegnum umhverfismat verður tekin ákvörðun um það hvort þetta verði jarðgöng eða brú, 12 metra brú eða 30 metra brú. Fjármögnunin er viðamikil líka. Þetta er mikill undirbúningur að útboðsferlinu og fjármögnuninni, það er viðamikið og tímafrekt líka. En við stefnum ótrauð á það að hefja framkvæmdir 2027. Það er markmiðið, alveg skýrt markmið. Við erum búnir með erfiðasta hjallann sem er mat á umhverfisáhrifum. Þar var það ekki einungis líffræðilega fjölbreytnin heldur komst ég líka að því að það er stunduð sjóstangaveiði í Kollafirði og guð má vita hvað ekki, það er fuglabjarg þar líka o.s.frv. En við erum búin með erfiðasta hjallann. Það er skipulagsferlið líka, það að tryggja þátttöku borgarbúa, almennings, í skipulagsferlinu er mjög mikilvægt. Það gæti líka skapað tafir en með samkomulagi við borgina ætti það að ganga snurðulaust fyrir sig.