157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

framlög jöfnunarsjóðs til grunnskóla á Suðurnesjum.

[15:40]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurnina, sem er einnig mjög góð. Og nei, börnin okkar á Suðurnesjum eiga aldrei að vera annars flokks þegnar hvað lýtur að jöfnuði um tækifæri þeirra til menntunar og aðbúnaðar og aðhlynningar eins og öll börn eiga rétt á. Hvað lýtur hins vegar að framhaldsskólunum og uppbyggingunni um verknámsskóla á Suðurnesjum þá er hönnunarferli að fara af stað núna í maí. Það verður hafist handa við bygginguna í janúar árið 2027 og vonandi flytjum við inn í glæsilegt verknámsviðbótarhúsnæði um mitt ár 2028. Ég á 100 ára afmæli sem ráðherra í dag (Gripið fram í.)og hef lagt nótt við dag til þess nákvæmlega að flýta öllum þessum verkferlum. Uppbyggingin á verknámsskólunum okkar er fjármögnuð í samráði við sveitarfélögin okkar þannig að ég vænti mikils og sé í rauninni bjarta framtíð hvað það varðar. Hún hefði átt að koma fyrr. (Forseti hringir.) Það er svo sannarlega satt og ég skil vel að margir séu orðnir langeygir eftir úrbótum.

[Hlátur í þingsal.] (Mennta- og barnamrh.: Viljið þið gjöra svo vel að laga þetta.)