Störf þingsins.
Frú forseti. Fulltrúar minnihlutaflokkanna á Alþingi fara mikinn í ádeilu sinni á ríkjandi stjórnvöld um fjölgun ríkisstarfsmanna. Það er út af fyrir sig ágætt. Stjórnarminnihlutinn á að sýna meiri hlutanum aðhald og veita honum gagnrýni á öllum tímum. En hvernig skyldi þetta hafa verið á þeirra tíð, upp úr hruni? Tölfræðin er öll á einn veg. Á árunum 2015–2020 var sett Íslandsmet í fjölgun ríkisstarfsmanna. Þeim fjölgaði langt umfram fjölgun starfsmanna á almennum vinnumarkaði og það sem sömuleiðis fór að gerast þegar hagkerfið var nokkurn veginn búið að jafna sig eftir efnahagshrunið var að ríkisstofnanir fóru að yfirbjóða almenna markaðinn í launum. Þess eru fjöldamörg dæmi. Vinir mínir í verkfræði sem eru að reyna að reka einkarekin fyrirtæki þekkja þetta vel. Þeir segja mér fullum hálsi að það sé almennt svo, og hafi gerst upp úr 2015, að venjulegar ríkisstofnanir hafi boðið u.þ.b. 25% betri laun en einkageirinn gat boðið og þess utan miklu betri og miklu fyrirsjáanlegri vinnutíma þannig að venjuleg verkfræðistofa úti í bæ gat ekki lengur keppt við ríkisstofnanir, þökk sé gríðarlegri fjölgun ríkisstarfsmanna í tíð vinstri stjórnar Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknar, og launin urðu langtum betri en nokkurn tímann hafði þekkst.
Ég þekki þetta sem fyrrverandi þingmaður á árabilinu 2009–2013. Þá var ég í 20 manna þingflokki ásamt forseta Alþingis sem situr hér fyrir aftan mig. Tveir starfsmenn þingflokksins voru þá. Þeir væru sex í dag, þreföldun, allt í boði fyrrverandi ríkisstjórnar sem núna á heilli síðu Morgunblaðsins gagnrýnir ríkjandi stjórnvöld. (Forseti hringir.) Ég held að viðkomandi flokkar eigi að líta sér nær.