Störf þingsins.
Frú forseti. Það er mikið rætt um Evrópusambandið eins og gefur að skilja og ég fagna því. Það er auðvitað mjög gott að við tökum mikla umræðu um það mál á mjög víðum grunni. Mín afstaða hefur alltaf verið og er enn þá að háir vextir hérna á Íslandi og há verðbólga séu meinsemd. Mesta kjarabót íslenskra heimila, fyrirtækja, ríkissjóðs og sveitarfélaga eru lægri vextir og verðbólga. Ég held að það sé fullreynt með íslensku krónuna í því. Þess utan finnst mér gott mál að þjóðin eigi svolítið mikla aðkomu að þessu máli, reyndar tvöfalda aðkomu að þessu máli. Síðan er það auðvitað þannig að þeir atburðir sem hafa verið að gerast í heimskerfinu, heimshagkerfinu, kalla á endurmat á öryggishagsmunum Íslands, varnar- og öryggishagsmunum. Það er reyndar endurmat sem þarf sífellt að vera í gangi. En umræðan hefur líka farið svolítið út í það hvort umsóknin sé gild eða ekki og um þetta eru skiptar skoðanir. Mér finnst sjálfum mjög varhugavert að halda því fram að umsóknin sé ekki í gildi og ég ætla að færa fyrir því rök. Það var Alþingi sem samþykkti á sínum tíma að hefja viðræður við Evrópusambandið. Síðan eftir næstu kosningar tóku við flokkar sem vildu ekki halda áfram þeim viðræðum. Þar af leiðandi voru viðræðurnar á ís. Þeir flokkar reyndu að setja þingsályktunartillögu inn í þingið um að stöðva viðræðurnar fyrir fullt og allt. Það reyndist ekki vera þingmeirihluti fyrir þeirri þingsályktunartillögu og því var farið í þá vegferð að sent var bréf til Brussel og við þekkjum öll þá sögu. Mér finnst það ekki ganga upp í þingræðisríki að þegar það liggur fyrir á tilteknu kjörtímabili að það er ekki meiri hluti fyrir því að gera það sem þingið hafði áður ályktað um á fyrra kjörtímabili, að framkvæmdarvaldið fari fram með þeim hætti sem gert var. Af þessum sökum finnst mér það algjörlega óumdeilt (Forseti hringir.) að þessi umsókn um aðild að Evrópusambandinu er í fullu gildi og út frá því eigum við að vinna. En síðan er það auðvitað þingnefndanna (Forseti hringir.) sem eru með málið núna að fara betur yfir það og mögulega laga orðalag ef þarf. En umsóknin er í gildi, svo sannarlega.