157. löggjafarþing — 98. fundur,  21. apr. 2026.

Störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Ég las í morgun að foksandur og rykagnir búa í þokunni sem liggur yfir höfuðborgarsvæðinu í dag. Ég held að foksandur sé í fleiri þokum og mig langar að nefna að það ríkir vissulega upplýsingaþoka yfir ríkisstjórninni þessi dægrin, sér í lagi hvað varðar umræðu um Evrópusambandið. Því miður er það svo að eðlilegum spurningum stjórnarandstöðunnar, sem hefur það hlutverk að spyrja að hverju því sem gæti komið að gagni, er of oft mætt með skætingi. Mig langar að nefna sérstaklega nýtilkomið atriði varðandi frétt sem Morgunblaðið birti í síðustu viku um gagn sem hafði svona aftur dúkkað upp varðandi það að þar kæmi fram að aðlögun að reglum ESB myndi hefjast um leið og aðildarviðræðurnar hæfust. Þetta er að sjálfsögðu stórmál varðandi þá atkvæðagreiðslu sem bíður okkar núna seinna á árinu og var eðlilega umfjöllunarefni Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma við hæstv. forsætisráðherra hér í gær þar sem hún spurði hvort það kæmi til greina að þessar reglur yrðu aðlagaðar eins og kemur fram í þessu gagni. Í stað þess að svara spurningunni undanbragðalaust kaus forsætisráðherra að segja hér að allir stjórnarandstöðuflokkarnir, hún tiltók alla stjórnarandstöðuflokkana, væru eingöngu að keyra á hræðsluáróðri, stagli og þvælu. Hér var einfaldlega verið að spyrja spurninga. Það er ekki bara bagalegt að eðlilegum spurningum sé svarað svona í lögbundnum fyrirspurnatíma, það er alvarlegt. Það er alvarlegt að vilja ekki undanbragðalaust svara þeim spurningum sem er eðlilegt að spyrja. Það er ekki í boði (Forseti hringir.) að bjóða upp á viðlíka upplýsingaþoku því að við vitum, frú forseti, að í hvaða vegferð sem er, til þess að tryggja farsæla og góða lendingu, er þoka aldrei farsæl.