Störf þingsins.
Frú forseti. Ég kem hérna upp af því að mig langaði aðeins að leiðrétta hv. þm. Sigmund Erni Rúnarsson sem sagði að fjölgun ríkisstarfsmanna hefði hafist 2015. Staðreyndin er sú að þegar sú ríkisstjórn var við völd sem Samfylkingin tók þátt í fram til ársins 2013 þá var ekki fækkun eftir efnahagshrunið. Það var fækkun opinberra starfsmanna á árunum 2013–2015. Það gerist síðan árið 2016 að fjölgunin á sér stað. Þetta skiptir miklu máli því að hv. þingmaður sagði að allir flokkar í minni hlutanum ættu þátt í því að opinberum starfsmönnum hefði fjölgað svona. Það er ekki alveg rétt, Miðflokkurinn átti það ekki og ekki sú ríkisstjórn sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stýrði og þar sem fyrrverandi þingmaður Bjarni Benediktsson sat í fjármálaráðuneytinu. Hins vegar árið 2016 þegar Viðreisn kom í ríkisstjórn byrjaði starfsmönnum hjá hinu opinbera að fjölga mjög mikið og það var allt stjórnlaust árið 2019 og fram til dagsins í dag. Núna ætlar þessi ríkisstjórn að fækka opinberum starfsmönnum um 1% þrátt fyrir að þeim hafi fjölgað um 19% frá 2019. En mig langaði að koma hérna upp til að fagna því ef Miðflokkurinn á vin í hv. þm. Sigmundi Erni Rúnarssyni þegar kemur að því að taka á bákninu og reyna að koma í veg fyrir að það haldi áfram að aukast stjórnlaust.