lokun Foreldrahúss.
Virðulegi forseti. Foreldrahús sjálfseignarstofnun var stofnuð 1986. Þjónusta Foreldrahúss skiptist í ráðgjöf, meðferð, fræðslu, áfengis- og vímuefnaráðgjöf og uppeldis- og sálfræðiráðgjöf. Árið 2025 nutu þjónustu og meðferðar hjá Foreldrahúsi 586 ólögráða einstaklingar, 1.213 foreldrar fengu þjónustu hjá Foreldrahúsi og 326 símtöl voru tekin eftir kl. 16, allt notendum að kostnaðarlausu. Foreldrahús sjálfseignarstofnun er fjármögnuð með framlagi frá ríkissjóði, með framlagi frá Reykjavíkurborg og eigin fjáröflun. Framlag ríkissjóðs hefur verið í kringum 30 millj. kr. Nú ber svo við að það á að loka Foreldrahúsi núna 1. maí, og af hverju er það? Af því að ekki hefur náðst í ráðherra mennta- og barnamálaráðherra sem fer með þennan málaflokk. Það hefur ekki náðst í ráðherrann og eins og kemur fram í viðtali við framkvæmdastjóra Foreldrahúss er úrræðaleysið algjört og sambandsleysið er algjört af hálfu stjórnvalda.
Því langar mig að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra því að þó svo að þessi málaflokkur sé ekki á könnu hæstv. ráðherra þá er það samt þannig að ef úrræði eins og Foreldrahús lokar, fyrir 30 millj. kr. úr ríkissjóði, þá munu þessi úrræði og þessir einstaklingar að mörgu leyti á einhverjum tímapunkti lenda á könnu hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Er réttlætanlegt að skerða framlög til Foreldrahúss um 30 millj. kr. og verða til þess að stofnunin lokar núna 1. maí?