157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

lokun Foreldrahúss.

[15:08]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Herra forseti. Það er þannig að vímuefnavandi er bæði heilbrigðismál og félagslegt mál. Þar er ákveðin verkaskipting. Það er búið að styrkja heilbrigðismeðferð vegna vímuefnavanda verulega. Eins og ég sagði áðan þá tel ég þetta mikilvæga þjónustu en að sjálfsögðu þarf að meta á hverjum tíma hvernig skattfé er best varið. Ef þarna er farið fram á stóraukin framlög sem ekki eru til þá að sjálfsögðu þarf barnamálaráðherra að skoða það ítarlega. En ég mun ræða þetta mál við barnamálaráðherra næst þegar ég fæ færi á.