157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

upplýsingagjöf vegna greiðslna fyrir veitta heilbrigðisþjónustu.

[15:20]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Herra forseti. Ég átta mig ekki á á hvaða vegferð þingmaðurinn er. Það hefur ekki verið skylda að birta ársreikninga og hví ætti þá að leggjast í þá miklu vinnu að fara að birta þá afturvirkt? Ef frumvarpið nær fram að ganga þá verður það að sjálfsögðu gert. Hér er ráðherra sem er í rauninni að leggja fram mál sem, ef eitthvað, gengur gegn hagsmunum sem þingmaðurinn er að reyna að gera tortryggilega. Það er jú þannig að þingmaðurinn hefur reynt að tortryggja allt þetta mál, t.d. þessa ferliverkasamninga sem sú sem hér stendur og ráðuneytið hafa unnið að því að gera löglega. Ég tel að það sé þingmanninum ekki samboðið hvernig hún hefur gengið hér fram og að það sé mál að linni.