tækjabúnaður og samvinna tollgæslu og löggæslu á landamærum.
Herra forseti. Inn í landið flæða nú fíkniefni sem aldrei fyrr, skipulagður innflutningur af hálfu skipulagðrar glæpastarfsemi. Ég verð að viðurkenna að ég ber mikla virðingu fyrir þeim árangri sem löggæslustéttir okkar, þ.e. tollgæsla og lögregla, eru að ná, undirmannaðar og ekki vel tækjum búnar, í baráttunni. En það er alveg ljóst að það er mjög mikið verk að vinna. Ég vil minna á í þessu sambandi að á árunum 2017–2021 lagði Miðflokkurinn fram við hverja einustu fjárlagagerð fjármagnaðar tillögur um ákveðin tækjakaup til tollgæslu á landamærum sem eru röntgentæki til að röntgenskoða gáma. Þá var þessi búnaður tíu til fimmtán ára gamall og löngu úr sér genginn en síðan eru sex til níu ár, herra forseti, og ekkert hefur gerst. Ég veit að löggæslan er að hluta til undir stjórn hæstv. dómsmálaráðherra og að hluta til undir hæstv. fjármálaráðherra, þ.e. tollgæsluendinn, því miður, því að við fórum þá leið að sameina toll og skatt eftir að t.d. Danir tóku það í sundur eftir að hafa haft þau sameinuð um tíma. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvernig samvinnu er háttað milli fjármálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis um fyrirkomulag löggæslu, þ.e. tollgæslu og lögreglu, á landamærum og hvernig samvinnu og samstarfi lögreglu og tollgæslu er stýrt. Á mínum tíma, verið vinnandi nálægt þessum stéttum, byggðist þessi samvinna (Forseti hringir.) mikið á persónulegum samskiptum sem voru ágæt og góð en það er ekki endilega víst að svo sé alltaf og því spyr ég: Er þessi samvinna í einhverjum föstum farvegi?