157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

tækjabúnaður og samvinna tollgæslu og löggæslu á landamærum.

[15:33]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég þakka fyrir svar ráðherrans við fyrirspurn minni. Mér er kunnugt um þessa 50 lögreglumenn sem ráðnir voru og þeir skila átta sólarhringsmönnum á vakt á landinu öllu. Ráðning 50 lögreglumanna skilar aukningu um átta manns á sólarhring um landið allt. Betra en ekkert.

Nú höfum við verið án almennilegs röntgeneftirlits með gámum í höfnum um árabil. Þá verð ég að spyrja hvort hæstv. ráðherra sé tilbúinn í það að verða sér úti um fjárheimildir upp á sirka 700–800 milljónir, það er það sem búnaðurinn kostar, til að koma slíkum búnaði í notkun nú þegar, því að það er ekki eftir neinu að bíða. (Forseti hringir.) Ég hvet hæstv. ráðherra til að vera þá í þéttu samstarfi við kollega sinn fjármálaráðherrann. (Forseti hringir.) Ég bið um að ráðherrarnir kasti þessum bolta ekki á milli sín heldur sameinist í því að þessi búnaður verði keyptur nú þegar.