157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

jöfnun kostnaðar við dreifingu á raforku.

596. mál
[18:27]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 9/2004, en frumvarpið miðar að stóraukinni og svo gott sem fullri jöfnun dreifikostnaðar raforku milli þéttbýlis og dreifbýlis.

Ég sagði hérna áðan þegar ég flutti frumvarp til nýrra heildarlaga um loftslagsmál að ég gerði ekki endilega ráð fyrir því að það frumvarp yrði samþykkt hérna á þessu þingi þótt ég væri að flytja það. Það væri kannski meira flutt til að taka umræðu um það í þessum sal og kalla eftir umsögnunum, búa þannig í haginn fyrir þinglega meðferð á næsta löggjafarþingi. Öðru máli gegnir um þetta frumvarp. Ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt að við klárum það á þessu þingi. Ég átta mig á því að ég er að koma með það frekar seint inn í þingið og það er bara vegna ákveðinna flækja sem þurfti að leysa en ég tel að málið sé þess eðlis að það ætti engu að síður að vera raunhæft að klára það núna á næstu mánuðum.

Frumvarpið er samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun sem fer með framkvæmd þessa lagabálks. Málið á sér nokkurn aðdraganda. Ég einsetti mér strax þegar ég kom inn í ráðuneytið að klára dæmið, jafna dreifikostnað raforku til fulls, af því að það er réttlætismál, virðulegur forseti. Þetta er stórt byggðamál. Þetta er risamál fyrir landsbyggðirnar. Þetta er risamál fyrir bændur landsins, fyrir ferðaþjónustu, fyrir hinar dreifðu byggðir.

Við miðum hérna við 90% jöfnun, bæði vegna ákveðinnar samverkunar við breytingar á reglugerð um framkvæmd raforkulaga — sem eru í farvatninu og hafa verið kynntar á ráðuneytisvefnum og í samráðsgátt — sem geta haft áhrif á efnahagskerfið og vegna þess að Umhverfis- og orkustofnun benti á að hærra jöfnunarhlutfall myndi valda ofgreiðslum til einstakra notenda vegna mismunandi uppbyggingar gjaldskráa og samspils gjaldskránna við notkun. En fjárhæð jöfnunargjaldsins kemur auðvitað til endurskoðunar á hverju ári og síðast um áramótin hækkuðum við gjaldið í samræmi við vísitöluþróun og jukum þannig jöfnunina auk þess sem við afnámum jöfnunargjaldið af kyntum veitum.

Eins og þingheimur eflaust þekkir og er rakið í greinargerð frumvarpsins þá kveða lög um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku á um sérstakt jöfnunargjald til að standa straum af þessari jöfnun. Það er lagt á alla raforku sem fer um dreifikerfi raforku en í dag er staðan sú að tekjur af jöfnunargjaldinu og framlag ríkisins, sem er líka notað til þess að fjármagna þessa jöfnum, dugar aðeins fyrir 61% jöfnun kostnaðarins. Frumvarpið miðar að því að bæta úr þessu. Við leggjum til hækkun á jöfnunargjaldinu sem leiðir þá sjálfkrafa til hækkunar á svokölluðu dreifbýlisframlagi, framlagi til jöfnunar kostnaðar við dreifingu raforku, og stuðlaR þannig að aukinni jöfnun frá og með 1. júlí 2026, sem er sá gildistími sem við leggjum til. Þetta ætti að geta gengið eftir ef við klárum þetta frumvarp í t.d. maí eða júní og þá myndi raforkukostnaður í dreifbýli lækka strax frá og með 1. júlí í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um að stíga frekari skref til jöfnunar á dreifikostnaði raforku og treysta stoðir hinna dreifðu byggða.

Við leggjum til að fjárhæð jöfnunargjalds á hverja kílóvattstund vegna dreifingar raforku verði hækkuð úr 0,52 kr. í 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun sem er undir 1.000 megavattstundum ári en haldist óbreytt, í 0,52 kr., á hverja kílóvattstund á ári fyrir notkun sem er 1.000 megavattstundum á ári eða meiri. Með þessari þrepaskiptingu, sem sagt fyrir notkun sem fer umfram 1.000 megavattstundir á ári, sem er nýmæli í lögunum, erum við að koma í veg fyrir að stærri raforkunotendur sem eru á þéttbýlistaxta verði fyrir mjög íþyngjandi fjárhagslegum áhrifum vegna þessara breytinga. Auk þess er lagt til að gjaldið hækki úr 0,17 kr. í 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir skerðanlegan flutning raforku.

Þessar hækkanir á jöfnunargjaldinu munu skila 779 milljónum í viðbótartekjur árið 2026 en vegna þess að gjaldið fer rakleitt út í formi dreifbýlisframlags, það gerist bara sjálfkrafa, þá hækka útgjöld ríkisins að sama skapi sem þýðir að áhrifin á afkomu ríkisins verða engin. Jafnframt er það mat Hagstofu Íslands að áhrifin á vísitölu neysluverðs séu engin enda er verið að færa kostnað til en ekki auka hann.

Hvað þýðir þetta allt saman fyrir heimili og fyrirtæki í dreifbýli? Jú, raforkukostnaður meðalheimilis í dreifbýli mun lækka um sirka þúsundkall á mánuði og fyrir óniðurgreitt rafhitað húsnæði í dreifbýli nemur mánaðarleg lækkun rúmlega 8.000 kr. Ef við horfum á fyrirtæki og hina ýmsu atvinnustarfsemi í dreifbýli er kostnaðarlækkunin miklu miklu meiri og getur skipt verulegu máli; raforkukostnaður fyrirtækis í dreifbýli sem notar 500 megavattstundir af raforku á ári lækkar um 81.385 kr. á mánuði og raforkukostnaður fyrirtækis í dreifbýli sem notar 1.000 megavattstundir á ári, það getur t.d. verið garðyrkjustöð, lækkar um 162.771 kr. á mánuði. Ef við skoðum það í samhengi við stærri kúabú, fjós, ef við skoðum þetta í samhengi við fiskvinnslu, fyrir garðyrkjubændur sem eru á dreifbýlistaxta, þá erum við kannski að tala um tugi og í einhverjum tilvikum hundruð þúsunda á mánuði. Þetta er því gríðarlegur ávinningur fyrir dreifbýlið og sú smávægilega hækkun sem þetta kallar á í þéttbýli bliknar í samanburði við ábatann í hinum dreifðu byggðum. Þetta er risastórt byggðamál. Þetta er mikilvægt til að auka samkeppnishæfni dreifbýlisins, lækka kostnað.

Málið lætur kannski ekki mikið yfir sér og lagatextinn sjálfur er fjórar línur, ólíkt lagatextanum í frumvarpinu sem ég flutti hérna áðan, en það tók engu að síður sinn tíma að útfæra þetta mál á hátt sem við teljum skynsamlegan. Ég fór í nokkra hringi með það hvernig væri best að gera þetta en þetta er niðurstaðan, að þrepaskipta jöfnunargjaldinu, draga línuna við 1.000 megavattstundir til að koma í veg fyrir verulega íþyngjandi fjárhagsáhrif í þéttbýli, þ.e. hjá stærri raforkunotendum.

Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. atvinnuveganefndar.