mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Sjálfstæðisflokks um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Hildur Sverrisdóttir taki sæti sem aðalmaður í utanríkismálanefnd í stað Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur og Bryndís Haraldsdóttir verði varamaður í stað Hildar Sverrisdóttur í sömu nefnd. Einnig að Árni Helgason taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Vilhjálms Árnasonar. Þá að Njáll Trausti Friðbertsson taki sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild NATO-þingsins í stað Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur en Bryndís Haraldsdóttir verði varamaður í sömu nefnd í stað Njáls Trausta Friðbertssonar. Að lokum að Ólafur Adolfsson taki sæti sem varamaður í Íslandsdeild Norðurlandaráðs í stað Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.