157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB.

[15:05]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ríkisstjórninni er mikið í mun að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu hér síðsumars. Mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi gert einhverja greiningu á því hvað slík þjóðaratkvæðagreiðsla myndi kosta og svo, ef menn álpuðust til þess að veita slíkum aðildarviðræðum brautargengi, hvað slíkar aðildarviðræður kosta.

Það liggur fyrir umsögn frá landskjörstjórn sem hún sendi til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um þann kostnað a.m.k. sem lýtur að landskjörstjórn og lýtur þá að mestu leyti kannski að framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar sjálfrar. Þar kemur fram að það er auðvitað kostnaður vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu og verkefna yfirkjörstjórnakjördæma. Það er einnig kostnaður við prentun og dreifingu kjörgagna og sérstakt framlag til sveitarfélaga vegna framkvæmdar kosninga. Þetta er talið um 6–700 milljónir sem þessi þjóðaratkvæðagreiðsla myndi kosta ef tekið er mið af þeim kostnaði sem var vegna kosninganna árið 2024. Þetta á auðvitað eftir að verðlagsuppfæra allt saman en það kemur líka fram sérstaklega hjá landskjörstjórn að undir hana fellur samkvæmt lögum það hlutverk að standa fyrir víðtækri kynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Kostnaður sem í því felst er einkum við útgáfu og gerð og dreifingu kynningarefnis. Landskjörstjórn tekur það sérstaklega fram að kostnaður vegna þessara verkefna liggi ekki fyrir.

Ég hlýt að spyrja hæstv. fjármálaráðherra hvort hann hafi lagt niður fyrir sig þennan kostnað, hvort gert sé ráð fyrir honum í fjárlögum yfirstandandi árs og svo í framhaldinu um kostnaðinn við mögulegar aðildarviðræður færi svo að þjóðin kallaði eftir því að fara í slíkar viðræður.