157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB.

[15:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir spurninguna. Það er rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að það liggur nokkuð fyrir hvað kostar að halda kosningar á Íslandi. En eins og einnig kom fram í máli hv. þingmanns þá eru þessar kosningar að einhverju leyti sérstakar. Gróf áætlun um kostnað vegna kosninganna í haust er í kringum 500 millj. kr. Það er að sjálfsögðu ekki gert ráð fyrir þeim kostnaði í fjárlögum enda lá ekki fyrir þegar þau voru lögð fram og samþykkt að þessi atkvæðagreiðsla ætti að fara fram en gert verður ráð fyrir þeim kostnaði af því svigrúmi sem er að finna í rekstri hins opinbera. Hvað varðar síðan kostnað sem kæmi í kjölfarið þá er það kostnaður sem hangir ekki bara á ákvörðun sem ekki lá fyrir við gerð fjárlaga og fjármálaáætlunar heldur einnig á niðurstöðu kosninganna sjálfra sem auðvitað liggur ekki fyrir fyrr en þær fara fram.

Mig langar þó að nota þetta tækifæri til að segja að það væri aldrei þannig, og ég hygg að þingmenn séu almennt sammála um það, að kostnaður einn og sér yrði ráðandi í því að ákveða lýðræðislegt ferli eins og það að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um eins mikilvægt mál og þetta hér og þessi kostnaður er alls ekki óyfirstíganlegur.