kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegur forseti. Það er eins og hæstv. ráðherra hafi ekki hlustað á fyrirspurn mína heldur komi bara hér með fyrirframákveðið svar um kostnað sem hann metur 500 milljónir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu. Það liggur fyrir umsögn frá landskjörstjórn þar sem hún telur að það sem til hennar friðar heyrir í þessu nemi 6–700 milljónum, miðað við kostnaðinn sem hefur verið árið 2024 og á þá eftir að uppfæra það miðað við verðlag. Þá er líka ótalinn kostnaður sem hún tilgreinir sérstaklega og hlýtur að vera umtalsverður, sem er kostnaður vegna kynningar landskjörstjórnar á málefninu, ekki á kosningunni heldur á málefninu. Þetta er kannski ekki mikill kostnaður, þetta telur kannski upp í einn milljarð, bara atkvæðagreiðslan. Þess utan hlýtur maður að spyrja: Gerir hæstv. fjármálaráðherra ráð fyrir að stöðugleikareglan sé í einhverri hættu í þessum efnum? Og ef hæstv. ráðherra gæti síðan farið aðeins yfir kostnað Stjórnarráðsins af aðildarviðræðunum sem myndu þá jafnvel hefjast í september.