kostnaður við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir endurtekna spurningu. Það að það kostnaðarmat sem ég lagði fram sé ekki í samræmi við mat landskjörstjórnar þýðir einfaldlega að á það hefur þá verið lagt sjálfstætt mat á grundvelli fyrri reynslu. Ég er ekki í aðstöðu til að taka rökræðu um einstaka kostnaðarliði þar en vísa einungis í þá tölu sem fyrir mér liggur. Þessi kostnaður er að sjálfsögðu ófyrirséður og einskiptis og fellur þar af leiðandi ekki undir stöðugleikareglu, er ekki þeirrar gerðar.
Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan: Það kostar auðvitað að hafa lýðræði og okkur dytti aldrei til hugar að skera það niður vegna kostnaðar. Það er einfaldlega einn af grunnsteinunum í íslensku samfélagi. Það á við um þessa atkvæðagreiðslu eins og aðrar lýðræðislegar ákvarðanir.