157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti.

[15:17]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir síðari spurninguna en vil aftur rifja upp fyrir hv. þingmanni það sem við höfum áður rætt hér um mikilvægi þess að aðgerðir sem þessar séu fullfjármagnaðar. Ég held að þarna sé verið að rugla saman tveimur hlutum. Lækkun virðisaukaskatts á matvæli væri einungis aðgerð til þess að hafa áhrif á mælt verðlag. Lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti er viðbragð við sögulega sérstæðum atburði sem er lokun Hormússunds og þeim afleiðingum sem það hefur fyrir hagkerfi heimsins sem munu verða verulegar til skemmri tíma litið. Sambærilegt áfall hefur ekki átt sér stað varðandi matvælaframleiðslu, a.m.k. ekki enn þá. Komi til þess getum við tekið um það umræðu. En áfram vil ég minna hv. þingmann á að þegar kemur að aðgerðum eins og þessum þá þurfa þær að vera fjármagnaðar. Við þurfum þá að verða sammála um það hvernig sú fjármögnun á að fara fram.