157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

rammasamningur Íslands og ESB um styrki vegna aðildarviðræðna .

[15:21]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Mér þykir gott að skynja það að stjórnarandstaðan er smám saman að átta sig á því að við erum að ræða um það að klára samning, þetta er ekki aðlögun. Það er fagnaðarefni að stjórnarandstaðan sé í rauninni hætt að tala um að þetta sé aðlögun. Það er verið að spyrja okkur um samningsmarkmið, það er verið að spyrja okkur um hvernig eitt og annað gildir og mér finnst það mjög mikilvægt, þannig að við erum alla vega komin með það á hreint, við erum að fara að greiða atkvæði um það hvort við ætlum að sjá samning.

Síðan eru vissulega mjög áhugaverðar spurningar sem hv. þingmaður setur upp, m.a. varðandi rammasamninginn sem var gerður á sínum tíma í þáverandi ríkisstjórn sem fór af stað með allt ferlið. Ég vil vekja athygli á því að ríkisstjórnin sem tók síðan við vildi klára þau verkefni sem höfðu hlotið styrk undir þessum rammasamningi. Það var ríkisstjórn undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson studdi og þá var auðvitað ekki verið að tala um aðlögun, ekki frekar en við erum núna að tala um neina aðlögun. Það var einfaldlega verið að tala um verkefni, samninga sem höfðu verið gerðir, þannig að sú ríkisstjórn fór ekki í það og ekki heldur þær ríkisstjórnir sem m.a. Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið í öll árin síðan. En illu heilli var það ESB sem rifti samningum um einstök verkefni sem voru mjög mikilvæg fyrir m.a. okkur Íslendinga svo ekki varð af frekari styrkveitingum en eftir stendur, sem er rétt, að rammasamningur Íslands og Evrópusambandsins er í gildi.

Fyrst þáverandi og fyrrum ríkisstjórnir hafa ekki verið að hlutast til um að segja sig frá þessum samningi þá velti ég fyrir mér: Af hverju er allt í einu komin þessi áhersla á það núna? Það sem skiptir öllu máli er að við erum að fara í ferli. Já, það mun kosta. Síðasta ferli kostaði, (Forseti hringir.) þá fékk Ísland styrk, m.a. þýðingarstyrk upp á 500 milljónir til að þýða og ég held að það hafi líka skipt miklu máli. (Forseti hringir.) Síðan voru fleiri verkefni, eins og ég segi, sem féllu undir samninginn. En ég er líka ánægð að heyra að hv. þingmaður fagni því að það sé ánægjulegt, ef ég hef skilið hann rétt, (Forseti hringir.) að það styttist í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem skiptir okkur Íslendinga gríðarlega miklu máli, (Forseti hringir.) hvort við eigum að klára samning við Evrópusambandið eða ekki.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hæstv. ráðherra á að virða ræðutímann.)