rammasamningur Íslands og ESB um styrki vegna aðildarviðræðna .
Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé bara eitt furðulegasta svar sem hefur komið hér fram í þingsal. Var þetta einhver skets? Ég er að vísa í rammasamning um aðlögunarstyrki. Við fengum 8.000 millj. kr. í aðlögunarstyrki. Ég er að spyrja: Hvenær ætlar hæstv. ráðherra að kynna þetta fyrir þjóðinni? Ef hún segir já þá virkjast þetta. Ég las hér beint upp, með leyfi forseta, „aðstoð skal vera í samræmi við stefnumið ESB og stuðla að samræmingu við réttarreglur ESB.“ Aðlaga okkur að réttarreglunum.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki hugmynd um hvað hæstv. ráðherra var að tala um. Hæstv. ráðherra hefur ekki hlustað á eitt orð í fyrirspurn minni. Ég er hér með rammasamning um aðlögunarstyrki. Við tókum við 8.000 milljónum í aðlögunarstyrki. Þannig að við erum að fara að aðlaga okkur ef við segjum já. Um það er ekki deilt, það liggur fyrir. Ég spyr hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Hvenær ætlar hæstv. ráðherra að kynna þetta fyrir þjóðinni (Forseti hringir.) í stað þess að vera með einhverja sketsaræðu hér sem er ekki í neinu samræmi við raunveruleikann?