rammasamningur Íslands og ESB um styrki vegna aðildarviðræðna .
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að spurningarnar eru bara svolítið út um víðan völl. Það er búið að vera þannig í eiginlega allan vetur að það er sama hverju maður svarar af því að ef hv. þingmanni líkar ekki svarið þá er bara sagt að það sé ekki verið að svara spurningum o.s.frv. Nú ætlum við að gera aðra heiðarlega tilraun til þess. Þegar þessi rammasamningur var gerður á sínum tíma þá litu fyrrum ríkisstjórnir, m.a. undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, ekki svo á að það hafi verið um neina aðlögun að ræða. Það sem ég ætla einfaldlega að fókusera á er að hér er verið að ýja að því að við séum að reyna að draga úr okkar fullveldi. Þvert á móti erum við að styrkja okkar fullveldi með því að fara í þetta ferli. Ég vil benda m.a. á aðrar Evrópuþjóðir. Hafa Danir skert sitt fullveldi með því að vera aðili að Evrópusambandinu? Þjóðverjar? Svíar? Finnar? Bara alls ekki. Nei, þvert á móti. Írar hafa nýlega sagt að þeir styrktu sitt fullveldi með því að fara í Evrópusambandið. Það sem ég er að segja (Forseti hringir.) er að þá var ekki verið að tala um aðlögun og það er ekki frekar núna verið að tala um aðlögun. Hv. þingmaður verður bara að una því að þá, alveg eins og þeir höfðu ekki kjark til að fara með þetta í gegnum þingið, hefði þurft að fara með þetta í gegnum þingið. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður hafði ekki burði til þess, ekki frekar en hann hafði burði til þess að afturkalla umsóknina formlega og það er þetta sem við sitjum uppi með. Við vorum í samskiptum við Evrópusambandið og þið gerðuð þennan rammasamning á sínum tíma sem hafði m.a. það í för með sér að það var verið að styrkja ýmislegt, (Forseti hringir.) m.a. þýðingar, og mér sýnist á öllu, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) að það hafi ekki veitt af því.
(Forseti (ÞSv): Forseti sér ástæðu til þess að minna á að í síðari umferð í óundirbúnum fyrirspurnum er ræðutíminn ein mínúta.)