utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætisræðu og ég get tekið undir margt sem þar kom fram. Það á að tala um veruleikann eins og hann er, það á að sýna heiðarleika, þjóðin á rétt á upplýsingum og við eigum að vinna gegn upplýsingaóreiðu. Ég held að það skipti máli að við tölum ekki bara svona í útlöndum heldur gerum þetta líka hér heima. Þess vegna, virðulegi forseti, ætla ég að gera aðra tilraun til að reyna að fá svar við fyrirspurn minni hérna í óundirbúnum fyrirspurnum. Því miður er það þannig að hæstv. ráðherra hefur verið að halda röngum hlutum að þjóðinni. Við þekkjum það, hæstv. ráðherra var ekki sá sem upplýsti af hálfu ríkisstjórnarinnar um þær staðreyndir að Evrópusambandslög myndu gilda ef við yrðum aðilar að Evrópusambandinu. Það var hæstv. forsætisráðherra sem gerði það í morgun, þó svo að allir hafi vitað það. En ég spurði hæstv. ráðherra og bið hæstv. ráðherra að tala í anda þess sem hæstv. ráðherra talaði um í þessari ræðu. Við fengum 8.000 milljónir í aðlögunarstyrki frá Evrópusambandinu. Hæstv. ráðherra og ríkisstjórn segir að allt það sem var í gildi þá, þingsályktun sem var í gildi þá, sé í gildi núna. Ég er búinn að vísa hér í rammasamning sem var samþykktur af Jóhönnustjórninni þar sem er algerlega skilgreint að hann er til þess að útdeila fjármunum sem framkvæmdastjórnin ákveður til aðlögunar Íslands að regluverki ESB. Ég spyr aftur hæstv. ráðherra: Hvenær ætlar hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin að kynna þetta fyrir fólkinu í landinu? Hæstv. ráðherra segir að þjóðin eigi rétt á upplýsingum.(Forseti hringir.) En hæstv. ráðherra gat ekki einu sinni svarað því hvernig þetta og annað sem að málinu snýr verður kynnt fyrir þjóðinni sem samkvæmt ráðherra (Forseti hringir.) á rétt á upplýsingum og ég er henni sammála hvað það varðar.