utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir ræðuna og þessa skýrslu en ég held að það sé rétt að útskýra samt það sem gekk á með alla þessa styrki frá Evrópusambandinu á sínum tíma. Mér finnst bara eðlilegt að það sé tekið fyrir í umræðunni. Ef það er reiknað að raunvirði í dag eru þetta 8.000 milljónir eða 8 milljarðar sem hafa farið í þetta þannig að það er bara eðlileg umræða að fá dýpri umfjöllun um það. Þetta er stuttur tími sem ég hef hér fyrir þessa stóru mynd sem skýrslan er einhvern veginn að lýsa, þessi ársskýrsla fyrir 2025 í utanríkismálum okkar Íslendinga. Það sem snýr að þróuninni og það sem hefur raunverulega gerst núna síðustu 80 ár eða svo er að í lok seinni heimsstyrjaldarinnar, í kringum 1950, voru 60 fullvalda þjóðríki í heiminum. Síðasta tala sem ég hef fundið eru 194 ríki sem eru fullvalda í dag og þessi aukning sem hefur orðið á þessum tíma eru fyrst og fremst þessi smáríki sem hafa bæst við. Í kringum 1950 voru þetta gömlu nýlenduveldin að mörgu leyti sem voru stór og þeim fór hnignandi árin þar á eftir. Þess vegna hefur það gríðarlega mikið að segja fyrir okkur Íslendinga hvernig er staðið að málum í dag. Ég tek undir það sem Alexander Stubb hefur talað um, þessi flekaskil sem hafa orðið eftir fyrri og seinni heimsstyrjöld, við lok kalda stríðsins og það sem við höfum upplifað núna síðustu árin. Það er kannski lykilatriðið í tengslum við þetta: Þarf ekki að vera svolítið skýrt í allri umræðu að við hér á Íslandi treystum fyrst og fremst á varnarsamninginn við Bandaríkin, á samvinnu við Bandaríkin í gegnum Atlantshafsbandalagið, þegar við erum að tala um að tryggja öryggi og varnir Íslendinga (Forseti hringir.) sem er frumskylda okkar Íslendinga að gera? Það er kannski fyrsta spurningin í þessari umræðu.