157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[16:41]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta eru náttúrlega risavangaveltur sem hv. þingmaður kemur inn á. Ég vil aðeins fara bara strax í norðurslóðaríkin. Við munum vonandi funda óformlega núna, það er verið að vinna að því, í næsta mánuði þar sem við munum einmitt fara yfir þessar ógnir sem steðja að norðurslóðum og reyna að efla enn frekar samskiptin og samstarf á sviði varna en líka skoða rannsóknir, vísindi o.s.frv. Grænland er bara gott dæmi um það hvað það skiptir miklu máli að vera bæði í NATO en líka með Evrópusambandið. Evrópusambandið stóð mjög þétt við bakið á Danmörku þegar það komu að mínu mati mjög gáleysislegar og vondar yfirlýsingar varðandi Grænland, fullveldi Grænlands og sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga. Þá stóðu Evrópuríki mjög þétt og það sýndi sig að pólitísk samstaða er líka vopn í því að verja þjóðir og það kom mjög skýrlega í ljós varðandi Grænland og Bandaríkin bökkuðu.

Að því sögðu þá vil ég líka segja að allar yfirlýsingar varðandi Grænland hafa stuðlað að því að NATO er í auknum mæli að horfa til aukins eftirlits í Norður-Atlantshafinu og á norðurslóðum og það eru að mínu mati jákvæðar afleiðingar þessa báts sem fór af stað og ruggaði mjög höstuglega. Við vitum að Grænlandsmálið er ekki búið en ég vil segja að það er í þokkalegum farvegi núna og það hefur líka treyst öryggi og varnir okkar Íslendinga með því að fá fleiri ríki innan bandalagsins og síðan aðgerðir sem eru núna væntanlegar eins og Arctic Sentry og fleira sem verður til þess að styrkja okkur.

Ég vil geta þess að það eru ríki — ég sé þetta styðja hvort við annað. Evrópusambandið er — ég gat um það áðan að ógnir sem steðja að okkur komi ekki endilega í formi einkennisbúninga. Ógnirnar eru ekki síst á sviði fjölþáttaógna (Forseti hringir.) og þess háttar. Þar er Evrópusambandið mjög sterkt. Það er að fjárfesta núna í hefðbundnum vörnum en líka í vörnum gegn fjölþáttaógnum, 800 milljörðum evra fram til 2035, (Forseti hringir.) minnir mig að það sé. Það mun hjálpa bæði okkur Íslendingum og Evrópu. Evrópa þarf að rísa upp, hún þarf að vera sterkari og sjálfbærari og það er það sem Evrópulöndin eru að vinna að, ekki síst þau lönd (Forseti hringir.) sem eru utan NATO og eru í Evrópusambandinu og þá er ég að tala um Austurríki, Írland og m.a. Kýpur. Þau eru að vinna sig þar í gegn.

(Forseti (BHar): Forseti minnir bæði hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á ræðutímann.)