utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Við erum auðvitað sammála um að þessi skref sem Ísland hefur tekið í auknu alþjóðlegu samstarfi hafi verið mikið gæfuspor fyrir Ísland en þessi upptalning er auðvitað gríðarlega eðlisólík þessu samstarfi og valdaframsali sem hæstv. ráðherra talar fyrir inn í Evrópusambandið. Við þurfum síðan ekkert að vera að þrefa um kosningu íslensku þjóðarinnar, hún er yfirstandandi og mun fara fram á þessu ári og ég ítreka afstöðu mína til þeirrar kosningar.
Varðandi málefni Írans og Súdans tek ég undir með hæstv. ráðherra; skilaboð Íslands, framlög Íslands og rödd Íslands skipta þar miklu máli. Það sáum við m.a. þegar utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins tók fyrir málefni Filippseyja á vettvangi mannréttindaráðsins. Við höfum auðvitað rödd þar eins og aðrar þjóðir og hún skiptir gríðarlega miklu máli. Varðandi mannréttindi og jafnrétti í starfi íslenskra stjórnvalda þá bara tek ég sömuleiðis undir með hæstv. ráðherra og hef talað fyrir því í þessum þingsal. Ég fór nú fyrir nefnd sem innleiddi mannréttindamiðaða þróunarsamvinnu t.d. í utanríkisráðuneytinu og ég hef talað fyrir því að við leggjum aukna fjármuni og áherslu m.a. á jafnréttisbaráttu kvenna í Sierra Leone þar sem við höfum opnað tvíhliða sendiráð. Af því að hæstv. ráðherra nefnir sérstaklega málefni hinsegin fólks þá hef ég sömuleiðis talað fyrir því að við beitum okkur í þeim efnum, til að mynda í samstarfsríki okkar og í þróunarsamvinnu við Palestínu þar sem hinsegin fólk hefur verið ofsótt. Við höfum verið að leggja þeirri baráttu lið þar með fjárframlögum. En það er auðvitað ekki sama hvernig það er gert. Við viljum auðvitað að öll framlög nýtist, þó að þau séu í nafni mannréttinda, jafnréttis eða þróunarsamvinnu, og að þau séu gagnsæ.