utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka svarið. Ég vil kannski halda áfram að dvelja við mannréttindin og jafnréttismálin, ekki síst af því að ég held að það væri bara ágætt að vita hvort hv. þingmaður sé sammála mér í því að það er ákveðið bakslag þegar kemur að réttindamálum, bæði hinsegin fólks og kvenna, víða í heiminum. Ég held að það skipti máli að þeirri umræðu sem hefur verið hér heima sé mætt. Ég held að við verðum ekki trúverðug, að mínu mati, á alþjóðavísu nema við tölum fyrir sömu gildum hér heima; að við styðjum fjölbreytileikann, að við leyfum fólki að hafa frelsi til að vera það sjálft hér heima líka. Við hljótum að geta talað skýrt.
Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að ég hef saknað þess svolítið að heyra úr forystu eða frá þinghópi Sjálfstæðisflokksins, um þessa umræðu sem hefur átt sér stað um réttindi hinsegin fólks, um regnbogafánann og fleira sem hefur verið í íslensku samfélagi. Eins og hv. þingmaður þá kem ég kannski líka að jafnrétti kynjanna; ég var á sínum tíma í sama flokki og tilheyrði hópi kvenna sem þóttu frekar byltingarsinnaðar þegar kom að réttindum kvenna og jafnrétti og við nefndum okkur sjálfstæðar konur. Við vildum tryggja rétt kvenna til að mennta sig, fara á vinnumarkaðinn og hafa raunveruleg tækifæri til að njóta jafnra tækifæra. Síðan sé ég í dag að þingmenn flokksins núna hafa verið að setja frelsi kvenna í samhengi við geðheilsu kvenna. Mér þætti gott í ljósi þessarar stóru myndar — af því að við þurfum að kjarna okkur hérna heima til þess að geta farið út og verið trúverðug þegar við tölum raunverulega um jafnrétti kvenna og fjölbreytileikann — og þess vegna langar mig að spyrja hvort hv. þingmaður taki undir með samþingmanni sínum, Jóni Pétri Zimsen, þegar kemur að viðhorfi gagnvart konum.