157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[17:04]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. utanríkisráðherra sem fyrrverandi forystumaður í Sjálfsstæðisflokknum þekkir vel hvaða flokkur það er sem hefur verið leiðandi í réttindabaráttu fyrir hinsegin fólk og fyrir konur á Íslandi, hverjir það voru sem ruddu brautina í þeim efnum þannig að nýir flokkar geti þó verið að skreyta sig með fánum, fjölbreytileika og frelsinu í dag. Það voru Sjálfstæðismenn sem ruddu þessa braut. Ég hef alla tíð stutt þá stefnu og verið stoltur, reyndar bæði aðstandandi en líka Sjálfstæðismaður og stutt frelsi einstaklingsins til að vera hann sjálfur. Það hefur ekkert breyst í þeim efnum hjá Sjálfstæðisflokknum. Við stöndum áfram og hér eftir sem hingað til með mannréttindum allra. En af því að við erum að ræða hér utanríkismál, við erum auðvitað að því, og ég heyri að hæstv. utanríkisráðherra vill beina umræðunni hingað heim og ég skil það ágætlega, þá langar mig að benda hæstv. ráðherra á það að þegar við vorum með utanríkisráðherrastólinn þá settum við þetta sérstaklega sem áherslu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna þegar við hlutum kjör þangað inn. Það voru réttindi hinsegin fólks og réttindi kvenna og jafnrétti. Við settum þetta á dagskrá. Af því að hæstv. ráðherra gerir bakslag hér að umtalsefni þá langar mig bara að nefna það, af því við erum að ræða hér utanríkismál, að í því samhengi, eins og þegar við erum að skoða þróunarsamvinnu, þegar við erum að skoða tvíhliða samstarfslönd okkar eins og t.d. Palestínu, þá er auðvitað varla hægt að tala um bakslag af því að hænuskrefin áfram eru svo ofboðslega lítil. Það er auðvitað þyngra en tárum taki að fylgjast með þeirri þróun, því miður. Ég ítreka það, ef það hefur ekki komið nógu skýrt fram nú þegar, að við Sjálfstæðismenn stöndum áfram með frelsi einstaklinga og með mannréttindum allra.