157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[17:09]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og gaman að heyra að hann hafi getað tekið undir margt í ræðunni hjá mér enda eigi Viðreisn og Sjálfstæðisflokkurinn margt sameiginlegt og það má til sanns vegar færa, eiga það meira að segja sameiginlegt að hafa verið lengst af í sama flokki. En við erum ekki bara að ræða aukið samstarf. Þar greinir okkur hv. þingmann á. Við erum að ræða, með aðild Íslands að Evrópusambandinu, gríðarlega mikið valdaframsal, gríðarlega mikið. Það er auðvitað ákveðin taktík að mála þetta upp eins og þetta sé bara einhver aðeins þéttari saumaklúbbur. En það að framselja ríkisvald, framselja löggjafarvald, framselja dómsvald til Brussel er auðvitað ekki aðeins þéttara samstarf. Hv. þingmaður gerir lítið úr þessum fleyg sem ég minntist á áðan og fór yfir að hefði verið rekinn í samstöðu hér um utanríkismál með því að setja aðild að ESB á dagskrá. Þá langar mig til að benda hv. þingmanni á það að forsætisráðherra Noregs vill til að mynda ekki setja, kratinn sem hann er, ESB-aðild á dagskrá í Noregi af því að hann vill ekki kljúfa norsku þjóðina. Það er a.m.k. sjónarmiðið þar.

Varðandi niðurstöður síðustu kosninga þá er það bara óumdeilt, það geta allir flett því upp hverjar voru niðurstöður síðustu kosninga, að þeir flokkar sem töluðu fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu og tala fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu hlutu ekki meiri hluta til þess, bara langt í frá. Það er auðvitað óumdeild niðurstaða. Og varðandi það hvort þetta sé ekki bara hreinleg leið til að útkljá þetta mál, svo ég vísi í orð hv. þingmanns, með leyfi forseta, „í eitt skipti fyrir öll“, þá langar mig til að fá fram afstöðu hv. þingmanns: Ef niðurstaðan verður nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á þessu ári, ætlar hv. þingmaður (Forseti hringir.) þá að hvíla þetta mál í eitt skipti fyrir öll? Fær íslenska þjóðin þá loksins frí frá þessu tali um aðild að ESB?