157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[17:12]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir. Það liggur alveg fyrir að auðvitað verða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar, hvort sem þær verða ein eða tvær, virtar. Það hefur alltaf legið fyrir af hálfu míns flokks að það sé hreinlegt að fara í þessar þjóðaratkvæðagreiðslur en það sé líka ákveðin skylda fólgin í því að fara eftir niðurstöðunni. Mér finnst bara mjög gott að gera það en ég ætla samt að gera athugasemd við það að við séum að stilla upp úrslitum þingkosninga eins og það hafi verið kosið um eitthvert eitt mál. Auðvitað vitum við að það er ekki þannig, við bara vitum það. Þess vegna er bara ánægjulegt að það sé skýr þingmeirihluti fyrir því að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald Evrópumálanna. Það er auðvitað þingmeirihluti fyrir því, eins og við vitum öll.

Að hvíla málið í eitt skipti fyrir öll — Norðmenn hafa t.d. kosið um þetta tvisvar — ég held að það sé algerlega þannig að við Íslendingar þurfum alltaf að vera að meta stöðu okkar í alþjóðakerfinu, alltaf. Það liggur alveg í hlutarins eðli. Ég vek t.d. athygli á því að Finnar og Svíar fóru inn í NATO til að þétta raðirnar í varnar- og öryggismálum. Um svipað leyti fóru Danir inn í öryggissamstarf Evrópusambandsins. Það var auðvitað einhver ástæða fyrir því þannig að þetta mat þjóða er alltaf til staðar. Bretar tóku þá ákvörðun á sínum tíma, fyrir ekki mörgum árum, út frá einhverju mati hjá sér, að ganga út úr Evrópusambandinu, sem reyndar mikill meiri hluti þjóðarinnar sér eftir í dag eins og kannanir sýna svo skýrt.

Ég velti því upp við hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur hvort hún telji, bara út frá fjölþáttaógnum og öðru slíku, að það hafi ekki verið skynsamlegt hjá Dönum að ganga algerlega undir varnarhluta Evrópusambandsins og (Forseti hringir.) hvort það hafi ekki verið einhver efnisleg rök á bak við það hjá Dönum að gera það.