157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[17:15]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þar höfum við það. Það á að virða niðurstöður kosninga og það á að jarða þetta mál í eitt skipti fyrir öll en bara ef svarið verður já. Eins og hv. þingmaður fór yfir í andsvari sínu þá eru Norðmenn búnir að kjósa um þetta tvisvar. Hvað leið aftur langur tími í Noregi áður en ESB-sinnar þar fóru að tala um ESB aftur eftir að þeir töpuðu fyrri kosningunum? Það er mikilvægt að þjóðin viti það að ef hún segir nei í kosningunum á þessu ári um viðræður við Evrópusambandið um aðild Íslands að ESB þá getur hún bara klukkað Viðreisn aftur, örugglega mánuði síðar, örugglega á næsta ári, því að hv. þingmenn Viðreisnar munu engin fyrirheit gefa um að þetta mál verði saltað í eitt skipti fyrir öll. Hv. þingmaður ber það fyrir sig að það sé alltaf verið að meta stöðu Íslands og það verður örugglega komin einhver átylla fyrir Ísland til þess að ganga í Evrópusambandið mánuði seinna eða sex mánuðum seinna eða ári seinna ef svar íslensku þjóðarinnar verður nei. Ég er alveg viss um það og hv. þingmaður gekkst reyndar við því hér í ræðustól áðan.

Ég ætla síðan ekki að þykjast vita meira en annað fólk um niðurstöður kosninga eða af hverju fólk kaus eins og það kaus. En ég ætla samt að fullyrða, ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það vildi fullt af vinstra fólki t.d. halla sér að Samfylkingunni í síðustu kosningum einmitt út af loforði hæstv. forsætisráðherra um að Evrópusambandið yrði ekki sett á dagskrá í bráð. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða það og ég hef reyndar fyrir því ákveðnar heimildir, ég hef heyrt það úr mörgum áttum. Ég ætla ekki að túlka niðurstöður kosninganna eitthvað frekar en að líta bara á niðurstöðurnar og sjá hvaða brautargengi ESB- flokkarnir hlutu í þeim kosningum.

Varðandi fjölþóttaógnirnar, en ég er komin fram yfir tíma, (Forseti hringir.) þá langar mig bara að nefna að það var nú fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, (Forseti hringir.) sem situr hér í salnum, Guðlaugur Þór Þórðarson, sem gekk einmitt til frekara samstarfs um fjölþáttaógnir við Evrópusambandið og stofnaði sérstaka deild fjölþáttaógna í utanríkisráðuneytinu, þannig að það er vel hægt að gera án aðildar að Evrópusambandinu.