utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir útkomna skýrslu sem við ræðum hér í dag um utanríkis- og alþjóðamál og þá stöðu sem ágerist nú enn frekar á alþjóðasviðinu. Það hefur sannarlega reynt á okkur Íslendinga, með ólíku lagi þó en mörg önnur ríki sem takast með beinum hætti á við landvinningastríð og þurfa að verja sig fyrir gráum járnum, eitthvað sem við Íslendingar erum blessunarlega laus við að þurfa að gera. Megi svo vera um ókomna tíð. Við höfum hins vegar séð m.a. röskun á ýmsu sem við höfum gengið að sem vísu, aðfangakeðjum þar sem aðgengi að nauðsynlegum vörum hefur raskast og haft umtalsverð áhrif á öryggi okkar innan lands. Við vitum að við getum ekki búið við óbreytt ástand. Skýrslan sem um ræðir dregur upp mynd af heimi þar sem spennustig hefur vissulega aukist en tengslin á milli öryggis, viðskipta og tækni hafa orðið nánari en áður. Þessi þróun hefur bein áhrif á Ísland og alveg sérstaklega mikil áhrif á Ísland því fyrir smáríki á jaðri álfunnar felst verkefnið í því fyrst og fremst að tryggja aðgengi, áhrif og öryggi okkar í heimi þar sem við höfum litla aðkomu að því að móta reglurnar á stóra sviðinu. Borðspilinu hefur verið hent upp í loft og við erum að passa upp á okkar stað á spilaborðinu. Einhverjir vinir okkar vilja meina að blaðið með leikreglunum sem við höfum alltaf farið eftir sé óþarfi. Þau spiluðu einhvern tímann þetta spil samkvæmt öðrum reglum og það var miklu skemmtilegra.
Forseti. Teningunum hefur vissulega verið kastað og við vitum ekki hvernig þetta mun enda, hvorki fyrir okkur sem viljum vissulega vera öflugur bandamaður né aðra sem er slétt sama um stöðu smáþjóða og alþjóðlaga. En forseti, við erum ekki stödd í sumarbústað á spilakvöldi að spila Hættuspilið. Við erum hérna í þessum þingsal að vinna vinnuna okkar fyrir Íslendinga og passa upp á íslenska hagsmuni og vera ábyrg á alþjóðasviðinu. Ég vil sérstaklega vekja athygli á tengslum okkar við Norðurlöndin og í samhengi þess að vera Evrópuþjóð. Norðurlöndin hafa verið rædd hér í dag. Þau eru okkar mikilvægasti samstarfsmaður, leyfi ég mér að segja, ég leyfi mér bara að forgangsraða þeim í þann hóp, og ég held að það sé pólitískt óumdeilt að við viljum þétta raðirnar með Norðurlöndunum. Við deilum gildum, hagsmunum og efnahagslegri samþættingu. Ég vil vekja athygli á nýlegri greiningu á vegum norrænu ráðherranefndarinnar um virðiskeðjur Norðurlandanna sem sýnir að hagkerfin okkar eru mjög djúpt tengd í gegnum virðiskeðjur og fjárfestingar. En í skýrslunni er bent á að þessi samþætting nái vissulega langt inn í lykilgeira samfélaganna, orkuflutninga, stafræna innviði og iðnað, og skapi sameiginlega hagsmuni fyrir okkur sem landsvæði sem kalli á markvissari samhæfingu. Þetta skapar tækifæri, já, en alltaf áskoranir. Þá snýst þetta allt um viðnámsþróttinn í okkar samfélögum. Hann byggist á getu ríkja til að halda uppi starfsemi og verðmætasköpun þegar áföll dynja yfir, hvort sem þau tengjast alþjóðaspennu, truflunum í aðfangakeðju eða hraðri tæknibreytingu. Það eru einmitt þessar aðfangakeðjur sem verða að geta haldist og við verðum að gera ráðstafanir til að þær haldist.
Þetta kjarnar það sem í daglegu tali er kallað efnahagslegt öryggi. Í því samhengi hefur Ísland ákveðin sérkenni. Við erum einangrað eyríki en samt mjög svo tengd. Við erum landfræðilega einangruð en við viljum að sjálfsögðu vera með alla anga úti og eiga í uppbyggilegum og góðum samskiptum við flesta. Við byggjum hins vegar upp einangrað raforkukerfi. Við byggjum á jarðvarma og endurnýjanlegri orku. Við viljum skipa okkur í fremsta flokk þegar kemur að orkumálum og sjálfbærni í þeim geira. Tengsl okkar við orkumarkaði eru á öðrum grunni byggð en hjá nágrannaríkjum okkar. Þetta skapar styrk og sérstöðu en þetta kallar á mjög skýra stefnumótun um hvernig við tengjumst norrænum og evrópskum virðiskeðjum. Þarna skiptir hagsmunagæsla okkar miklu máli. Þetta, forseti, fær engan veginn nógu mikið svigrúm í umræðunni. Við höfum einnig séð þetta í alþjóðaviðskiptum þar sem ákvarðanir á evrópskum vettvangi hafa haft áhrif á íslenskan iðnað og útflutning án þess að norræn samhæfing hafi kannski verið nýtt til fulls. Við höfum séð þetta í öryggismálum þar sem nýjar áskoranir á borð við netöryggi, vernd mikilvægra innviða og tæknilegt sjálfstæði kalla á samstillt viðbrögð. Við viljum standa sterk saman. Af því við erum með ákveðið gljúfur á milli okkar í mikilvægu máli þá verðum við að geta unnið betur saman þrátt fyrir að ekki séu allir hluti af sama tollabandalaginu.
Forseti. Í norrænu skýrslunni sem ég er hér að minnast á er lögð áhersla á að aukinn viðnámsþróttur krefjist samræmdrar stefnumótunar þvert á ríki og þvert á málaflokka. En burt séð frá því verkefni sem við eigum fyrir höndum í vor og síðar í haust um hugsanlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið vil ég varpa þeirri spurningu fram: Hvernig nýtum við norrænt samstarf með markvissari hætti til að styrkja okkar efnahagslega öryggi í því að byggja upp sameiginlega greiningu og viðbragðsgetu gagnvart röskunum í aðfangakeðjum og lykilgeirum? Hvernig eflum við samhæfða hagsmunagæslu og er það yfirleitt hægt þegar við sjáum að EES-umhverfið er að breytast? Og í þriðja lagi: Hvernig ætlum við að þróa norrænar virðiskeðjur áfram á sviði orku, grænnar framleiðslu, stafrænnar tækni og nýsköpunar? Hvernig ætlum við að fara á undan með góðu fordæmi? Þetta eru áþreifanleg verkefni. Ég veit að þetta eru stórar spurningar og ég ætla svo sem ekki að krefja hæstv. ráðherra um svör hér og nú en mér finnst þetta verðugt umhugsunarefni inn í næstu misseri og helst fyrr. Ég sem formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs er svo sannarlega tilbúin til að vekja athygli á þessum málaflokkum á þeim vettvangi sem við eigum aðkomu að í því samhengi, á þingmannastiginu.
Forseti. Efnahagslegt öryggi snýst um að tryggja aðgang Íslands að mörkuðum, að aðföngum, að tækni og að borðum þar sem ákvarðanir eru raunverulega teknar. Þetta snýst um að byggja upp atvinnulíf sem stendur traustari fótum í síbreytilegu umhverfi. Þetta snýst um það að Ísland hafi raunveruleg áhrif þar sem ákvarðanir eru teknar; að bíða ekki fyrir utan fundarherbergi þar sem fram fara samtöl — nota bene ekki auglýstir fundir, við vitum að það gerist ýmislegt á auglýstum og skipulögðum fundum. Þótt við séum með aðgangskort inn í þau fundarherbergi þá vitum við að pólitíska samtalið er það sem er og blífur. Þar er algjör tilviljun hvort Ísland hafi aðgengi. Þetta er að sjálfsögðu spurning um það hvernig Ísland ætlar að huga að framtíð sinni í Evrópu. Það eru kostir og gallar við bæði fyrirkomulög. Það er óumdeilt að Evrópska efnahagssvæðið er búið að veita Íslandi aðgang að stærsta markaði heims fyrir okkur og hefur skapað grundvöll fyrir vöxt og verðmætasköpun. Á sama tíma hefur þróunin innan Evrópusambandsins leitt til þess að sífellt fleiri málaflokkar hafa bein áhrif á íslenskt samfélag. Þetta er okkar stærsti og nærtækasti viðskiptamarkaður, hvað sem öðru líður.
Ákvörðun um að taka einhver skref í aðra áttina felur í sér að Ísland leggi mat á stöðu sína, leggi mat á tækifæri sín og leggi mat á áskoranirnar með opnum og yfirveguðum hætti. Við vitum að aðild okkar að Evrópska efnahagssvæðinu og þátttaka okkar í EFTA eru ekki í sama umhverfi og var hér fyrir tíu árum, fimm árum síðan. Við látum líka eins og það sé bara gefin staðreynd að Evrópska efnahagssvæðið sé einfaldlega til, að við getum alltaf gengið að því. Staðan er sú að Evrópska efnahagssvæðið og veru okkar þar þarf að rækta. Það væri eflaust Evrópusambandinu til góðs ef við myndum bara leggjast lágt og láta lítið fyrir okkur fara þar. Kannski höfum við bara hreinlega ekki þurft að gera jafn mikið á þeim vettvangi og við munum koma til með að gera hvað sem öðru líður. Ef íslenska þjóðin ákveður að segja nei í haust eru það, út frá mér séð, vonbrigði. Ég tel að það fæli í sér að við værum að loka dyrum sem standa okkur opnar og við myndum glata tækifæri til að berjast fyrir íslenskum hagsmunum. En ef íslensku þjóðinni líst ekki á þá vegferð þá ber að bera virðingu fyrir því. En það breytir ekki þeirri staðreynd að við þurfum að halda vel á spilunum og fólk sem ætlar sér að standa vörð um íslenska hagsmuni þarf að átta sig á því að það þarf eitthvað mikið að breytast til þess að við komum tímanlega að málum og látum ekki tækifærin renna til sjávar.
Ég var stödd á viðburði hér á Grand hóteli á þriðjudaginn í síðustu viku, þar sem hæstv. utanríkisráðherra var m.a. viðstaddur, þar sem var verið að ræða um hagsmunagæslu Íslands á vettvangi Evrópska efnahagssvæðisins og hugsanlega nýtingu gervigreindar til að koma í veg fyrir ýmsa hnúta í því ferli, gullhúðun og fleira. Það var svo sem áhugavert að fylgjast með því hvernig fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Bjarni Benediktsson, orðaði það sérstaklega að hann teldi nauðsynlegt fyrir Ísland, og hann hefði talað fyrir því með ötulum hætti, að Alþingi ætti að vera með pólitíska viðveru, ætti að vera með skrifstofu í Brussel, enda væri pólitíska aðkoman lítil sem engin og stjórnmálaflokkarnir ættu að sýna lit og vera líka með sína fulltrúa til að fylgjast með. Ég spyr: Hvers vegna ekki að taka skrefið og vera á þeim vettvangi þar sem við höfum raunverulega rödd og aðkomu að ákvarðanatökuferlinu í staðinn fyrir að hoppa hérna og pikka í bakið á fólki og biðja um að fá að vera með?
Forseti. Það er ljóst heilt yfir að íslensk utanríkisstefna stendur á traustum grunni en það er tímabil áskorana fram undan þar sem hún þarf að þróast í takt við nýjar aðstæður. Þetta kallar á markvissa samvinnu þvert á flokka. Ég lofa því af minni hálfu að ég reyni að leggja mitt af mörkum til þess. Hér hefur verið sagt að það sé best fyrir Ísland að leggjast lágt og fara varlega á ólgutímum. Um það vil ég segja að slík stefna varkárni í utanríkismálum hefur sennilega aldrei átt minna við en akkúrat núna. Varkár þjóð sem hefði lagst lágt hefði ekki gengið í NATO, gerst stofnaðili að Norður-Atlantshafsbandalaginu 1949. Þjóð sem leggst lágt hefði ekki gert varnarsamning við Bandaríkin 1951. Hún hefði ekki gengið í EFTA 1970 og hún hefði ekki viðurkennt Eystrasaltsríkin eftir fall Berlínarmúrsins. Hún hefði ekki gerst aðili að Evrópska efnahagssvæðinu og hún hefði ekki viðurkennt Palestínu sem sjálfstætt ríki.
Forseti. Þjóð sem getur ekki staðið með öðrum stendur ekki með sjálfri sér. Þetta er ekki tíminn fyrir þýlyndi. Þetta er ekki tíminn til að vera allra. Ef við ætlum að vera vinur allra, erum við þá vinur einhvers í raun þegar á reynir?
Forseti. Ég þakka fyrir ágætar umræður hér í dag og ég legg áherslu á það að Ísland á að sýna öðrum þá framkomu sem það vill að aðrir sýni sér.