utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir andsvarið. Ég tek undir þetta og ég vil bara koma beint inn á niðurlag sem var í spurningu hæstv. ráðherra, það var óskiljanlegt hvernig ákveðið var að þyrla því upp, „pun intended“, afsakið, forseti, að hér mætti leiðtogi Evrópusambandsins og það væri tekið vel á móti henni. Það var gert tortryggilegt að við tækjum á móti með virktum leiðtoga okkar stærsta viðskiptamarkaðar, sýndum henni Ísland í fallegum sumarlitum og værum gestrisin. Þetta var gert tortryggilegt. Ég á ekki önnur svör fyrir hæstv. ráðherra en þau að þetta undraði mig líka. En hefði svo farið að leiðtogi Evrópusambandsins hefði komið hingað í heimsókn á vakt þeirra flokka sem þetta gagnrýndu þá tel ég mjög ólíklegt að viðtökurnar hefðu verið eitthvað minna gestrisnar, ég ætla að leyfa mér að gefa mér það.
Nei, EES-samningurinn er ekki konfektkassi. Það verður ekki valið og hafnað þó að því sé gjarnan haldið fram í daglegu amstri að við fáum bara að velja á einhverju hlaðborði það sem við ætlum að innleiða. Því fer svo fjarri að það hálfa væri nóg. Sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki og íslensk heimili, aukin samkeppnishæfni, meira úrval af erlendum aðilum sem koma til Íslands vegna þess að við gætum afnumið gjaldeyrisáhættu. Það væri hægt fyrir mig sem heimilishaldara að fá tilboð frá 30 tryggingafyrirtækjum en ekki bara þremur. Ég gæti lengi haldið áfram en ég hugsa að ég komi inn á það í mínu seinna andsvari.