utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir svörin. Mér hefur verið hugsað til þess að draga fram að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla, að þjóðin fái að sjá samning, að við náum að klára samning, er ekki síst kynslóðamál. Venjulegt fólk, almenningur, lítil og meðalstór fyrirtæki, fái að sjá hvaða hugsanlegu sviðsmynd við getum boðið upp á þegar kemur að því að ýta fákeppni út og efla samkeppni. Eigum við að tala einmitt um tryggingamarkað, eins og hv. þingmaður kom inn á, bankamarkað, matvörumarkað og fleira mætti telja? Ég held að það væri mikið fengið með því, svo ekki sé talað um gengisstöðugleika sem var komið inn á. Það er engin tilviljun, sama hversu góður fjármálaráðherra er hverju sinni, að það er samt þannig að við erum alltaf með þrisvar sinnum hærri stýrivexti hér en annars staðar. Það þýðir auknar álögur á heimili landsins. Við erum með verðtryggingu sem þekkist ekki annars staðar á byggðu bóli og við erum að jafnaði með verðbólgu sem er tvisvar til þrisvar sinnum hærri en gerist í Evrópu. Það að vilja ekki einu sinni leyfa þjóðinni að sjá samning — eins og ég hef ítrekað sagt þá mun ég segja nei ef samningurinn er ekki góður, ef hann fer gegn íslenskum hagsmunum með einhverjum hætti. Við munum leggja fram og setja fram okkar ýtrustu kröfur í þessu. Við skuldum þjóðinni, við skuldum kynslóðunum þetta.
Ég vil spyrja hv. þingmann um að það er eins og stjórnarandstaðan og tilteknir þingmenn stjórnarandstöðunnar festist, fái eitthvað á heilann og núna, samhliða því að þeir geta reyndar ekki gert upp á milli þess hvort þetta séu samningaviðræður eða aðlögun, eru þeir að festa sig í aðlögun á grundvelli IPA-styrkja, á grundvelli þess að það hafi einhvern tíma verið samið um einhverja styrki sem hafi haft óafturkræf áhrif á Ísland. Veit hv. þingmaður um einhver tilvik þar sem eitthvað hefur ekki gengið til baka? Veit hv. þingmaður af því að til að mynda Norðmenn hafi verið fastir í einhverju (Forseti hringir.) sem þeir voru búnir að ákveða þegar þeir náðu samningum við Evrópusambandið, sem vel að merkja var síðan hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu? (Forseti hringir.) Er eitthvað sem við hefðum gert í tengslum við þessa styrki sem hefur haft áhrif á Ísland til verri vegar, svo dæmi séu tekin?
(Forseti (HildS): Forseti minnir á að virða tímamörkin.)