utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir góða spurningu. Já, ég hef nú gluggað í skýrslu og úttekt Björns Bjarnasonar frá 2020, gott ef ekki, þar sem farið er með skipulögðum hætti yfir ábata þess ef við værum þéttari í samstarfi á varnarmálahliðinni. Síðan hefur nú alls konar átt sér stað í Evrópu og skyndilega erum við stödd í þeim heimi þar sem öll Norðurlöndin eru saman í NATO og geta unnið mjög þétt saman í NORDEFCO sem er svona svæðisbundið samstarf og eftir því sem ég fæ best séð, út frá þeim samtölum sem ég hef átt við fulltrúa Norður-Atlantshafsbandalagsins þegar þau koma hingað til lands, þá er ábati af slíku svæðisbundnu samstarfi, sömuleiðis af JEF og fleira. Það er engum blöðum um það að fletta að Norðurlandasamstarf hefur tekið grundvallarbreytingum frá því að eitt sinn var það bannorð að tala um varnarmál og öryggismál og vopnaframleiðslu. Nú erum við komin á þann stað að það er fyrirferðarmikið á öllum þeim fundum sem ég hef setið á þeim vettvangi. Núna stöndum við frammi fyrir endurskoðun Helsingforssáttmálans, sem er grundvallarstjórnarskrá Norðurlandasamstarfsins, þar sem við munum, eftir því sem líklegast er, færa það á formlegt verkefnasvið Norðurlandaráðs að ræða um þessi mál, móta stefnu og samhæfa okkur á þeim vettvangi.
Af því að hv. þingmaður nefnir atvinnuleysi í Evrópu og gerir því skóna að atvinnuleysi myndi aukast stórkostlega ef við myndum ganga í Evrópusambandið, þá langar mig til að minnast á að það eru nokkur Evrópusambandsríki sem eru með lægra atvinnuleysisstig en Ísland akkúrat núna. Þetta eru reyndar tölur frá því fyrir árslok 2025 en Pólverjar eru með rétt rúmlega 3%, sama á við um Tékkland og Búlgaríu. (Forseti hringir.) Malta er með minna en 3%, 2,7 og Þýskaland og Holland eru með einhvers staðar um 4% (Forseti hringir.) þannig að við skulum fara varlega í svona yfirlýsingar.