utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Já, ég er sammála hv. þingmanni um það að EES-samningurinn hafi reynst okkur vel í öllum meginatriðum og við eigum að standa vörð um hann og hann býður upp á ýmis tækifæri. Það er nú þess vegna sem manni finnst það vera svo mikið gönuhlaup að ætla að henda honum frá sér fyrir það að fara inn í Evrópusambandið þegar fyrir liggur að við fengjum mjög lítið til viðbótar við EES-samninginn. Við höfum mjög mikið í EES-samningnum þegar kemur að samskiptum við Evrópusambandið og það væri lítill ávinningur að ganga inn í Evrópusambandið en því mun meiri kvaðir sem myndu leggjast á. Það er þó þannig að það fylgja því kvaðir fyrir Ísland að vera í EES-samningnum en ég held að þær kvaðir séu ásættanlegar með tilliti til ávinningsins.
Hitt er auðvitað að EES-samningurinn og slíkt samstarf af hvaða toga sem það er tekur eins og annað samstarf auðvitað breytingum. Það þarf auðvitað að fylgjast með og EES-samningurinn hefur tekið miklum breytingum. Það eru komnir inn í hann ákveðnir kaflar í dag allt í einu sem ekki voru þegar við sömdum um hann árið 1990 þannig að hann hefur tekið stórstígum breytingum, að sumu leyti til góðs en að öðru leyti alveg afleitlega. Það eru ýmis atriði þar sem menn hafa reynt að troða inn í sem eru ekki beint inni í EES-samningnum en menn hafa viljað láta innleiða hér á landi með vísan til samningsins, einhvers konar hliðarmál sem ekki eiga undir samninginn. Það er þetta sem Íslendingar og íslensk stjórnvöld þurfa að vera vakandi fyrir og halda uppi málsvörn og hagsmunagæslu hvað þetta varðar. Nú man ég ekki hvað varaformaður Miðflokksins sagði en ég hygg nú að hann hafi verið að nefna þetta, að ef allt í einu samningurinn yrði algerlega óásættanlegur fyrir íslenska hagsmuni þá segja menn að sjálfsögðu slíkum samningi upp. Það er alveg eins og ef NATO myndi allt í einu ganga af göflunum (Forseti hringir.) og það yrði allt óásættanlegt þar þá myndum við ganga úr NATO. Væntanlega er hv. þingmaður sammála mér um það.