157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:28]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Íslendingar eru þátttakendur í alls kyns alþjóðastarfi og aðilar að fjölmörgum alþjóðlegum stofnunum og samtökum. Mest af þessu starfi fer fram án mikillar athygli en það þýðir ekki að þetta alþjóðlega samstarf skipti ekki máli. Sumir líta alþjóðlegt samstarf hornauga og telja það óþarfamunað að þingmenn og embættismenn séu að ferðast út í heim á kostnað almennings til að sitja fundi sem engu máli skipti til að ræða mál sem hafi engin áhrif á líf fólks hér heima. Þessar fullyrðingar spretta oft af almennri tortryggni sumra eða jafnvel margra gagnvart stjórnmálum en einnig af eðlilegri kröfu almennings um árangur og ábyrgð í meðferð opinbers fjár. Fólk vill sjá að skattfé þess sé vel varið og það er sanngjörn krafa. En kannski byggir þessi gagnrýni líka á áhugaleysi á alþjóðamálum og að Íslandi sé best borgið með því að halda sig alfarið frá brölti umheimsins.

En þótt Ísland sé vissulega eyja er landið ekki eyland í pólitískum skilningi. Fáar þjóðir reiða sig eins mikið á snuðrulaus alþjóðaviðskipti og að friður ríki í heiminum, eða a.m.k. í okkar heimsálfu, og Íslendingar. Hagkerfi okkar er drifið áfram á alþjóðaviðskiptum, sölu sjávarafurða á markaði í Evrópu og víðar, sölu á áli og öðrum afurðum og ekki má gleyma ferðaþjónustunni sem hefur vaxið mikið á undanförnum árum og er nú orðin okkar aðalútflutningsgrein. Ferðaþjónustan er viðkvæm fyrir óvissu í alþjóðamálum, niðursveiflum þjóða heimsins í efnahagsmálum og átökum ýmis konar og stríðum. Það er þess vegna mikilvægt að rödd okkar um frið og samvinnu þjóða fái að heyrast. Það hefur margsinnis sýnt sig í gegnum áratugina og jafnvel aldirnar ef út í það er farið, að það skiptir máli að Ísland taki þátt í alþjóðlegri umræðu og samvinnu.

Alþjóðastarf er þess vegna ekki aukaatriði. Íslendingum er eins og öðrum þjóðum nauðsynlegt að vera vakandi yfir hagsmunum sínum og eiga fulltrúa þar sem ákvarðanir sem geta haft mikil áhrif á efnahagslíf og almenna velsæld þjóðarinnar eru teknar. Það er hluti af hagsmunagæslu Íslands. Það er ekki tilviljun að Íslendingar hafa alla tíð talað fyrir almennum mannréttindum, frelsi og virðingu fyrir alþjóðalögum. Þar höfum við langt í frá aðeins verið þiggjendur heldur höfum við þvert á móti lagt mikið fram á mörgum sviðum. Þannig var Ísland í forystu þjóða við útfærslu efnahagslögsögu ríkja þegar við færðum efnahagslögsöguna í áföngum frá fjórum mílum, í 12, 50 og síðan 200 mílur. Þá reið á að Íslendingar öfluðu sjónarmiðum sínum skilnings og stuðnings meðal annara þjóða og við nutum til þess krafta margra framsýnna stjórnmálamanna úr ólíkum flokkum og vel menntaðra sérfræðinga og embættismanna.

Það var stórt, mikilvægt en umdeilt skref þegar Ísland gekk í Atlantshafsbandalagið á sínum tíma. Það voru róstur á Austurvelli árið 1949 en í dag viðurkenna langflestir að það var mikið heillaskref þegar Ísland gerðist stofnaðili að NATO. Það var líka umdeilt þegar Íslendingar gengu í EFTA og þegar Alþingi samþykkti samninginn um Evrópska efnahagssvæðið á sínum tíma. Í dag viðurkenna langflestir að EES-samningurinn hefur reynst þjóðinni ákaflega vel. Hann hefur tryggt þjóðinni aðgang að um 500 milljóna manna markaði, aðgang okkar að vinnumarkaði Evrópu, menntakerfi Evrópu og þegar Íslendingar flytja án nokkurs umstangs til annarra Evrópuríkja njóta þeir sömu réttinda í þeim Evrópuríkjum og heimamenn. Allt þetta skiptir máli.

Við höfum líka lagt okkar af mörkum til friðargæslu, þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar. Það er tekið eftir framlagi okkar og það er metið að verðleikum. Við höfum líka lært mikið af okkar þróunarsamvinnu. Málin eru sjaldnast þannig í samvinnu þjóða að einungis önnur þjóðin þiggi og hin gefi. Ávinningurinn er nánast alltaf gagnkvæmur. Þátttaka okkar og framlag hefur líka skipt máli þegar við höfum lagt okkar að mörkum við að brúa milli ólíkra sjónarmiða. Fámenn og friðsöm þjóð getur talað með öðrum hætti en stórveldi. Við getum tekið þátt í að mynda traust, stuðlað að samtali og komið með yfirvegaða sýn þar sem aðrir sjá aðeins átök.

En staða heimsins í dag kallar á endurskoðun og hreinskilni. Við horfum upp á verstu stríðsátök í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Lýðræðinu sjálfu er ógnað. Spenna milli stórvelda og ríkjablokka hefur aukist, netárásir eru daglegt brauð, einræðisríki beita undirróðri og upplýsingaóreiðu til að reyna að rjúfa samstöðu lýðræðisríkja og draga úr samheldni þeirra og áhrifum. Á slíkum tímum dugar ekki að gera lítið úr alþjóðastarfi. Alþjóðastarf er hluti af vörnum okkar, velferð og framtíð. Það dugar ekki heldur að tala eins og Ísland sé eina friðelskandi þjóðin í heiminum. Við eigum fjölda bandamanna í baráttunni fyrir almennum mannréttindum, lýðræði og friði. Nú er ekki tíminn til að ala á úlfúð um þau grunngildi sem Ísland hefur alltaf staðið fyrir frá því við fengum fullveldi og stofnuðum síðan lýðveldi á Þingvöllum.

Eins og ég hef hér rakið lifum við á miklum óvissutímum í alþjóðamálum eins og hæstv. utanríkisráðherra hefur farið hér yfir. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita til þjóðarinnar varðandi áframhaldandi viðræður eða hvort taka eigi upp viðræður við Evrópusambandið á ný um aðild Íslands að sambandinu. Fyrir þinginu liggur tillaga til þingsályktunar um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin mun ráða því hvort þessar viðræður verði teknar upp á ný. Þetta er fullkomlega í anda stefnu Flokks fólksins um aukið beint lýðræði. Að þjóðin fái að koma að stórum og mikilvægum ákvörðunum sem varða framtíð okkar allra. Það er lýðræði í framkvæmd. Þessi þingsályktunartillaga snýst ekki um það hvort Íslendingar gerist aðilar að Evrópusambandinu, aðeins hvort gengið verði til viðræðna til að finna út hvers konar samning Ísland gæti fengið um aðild að sambandinu, því að ríkisstjórnin hefur einnig boðað að samþykki þjóðin að hefja viðræður, verði aftur boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um niðurstöðu viðræðna. Það verður því alltaf þjóðin sem mun ráða för. Við í Flokki fólksins hræðumst ekki þjóðina. Við treystum þjóðinni til að meta hvert Ísland skuli halda, hvar framtíð okkar er best borgið.

Nái þingsályktunartillagan um fyrri þjóðaratkvæðagreiðsluna fram að ganga skiptir miklu máli að yfirveguð og víðtæk umræða skapist meðal þjóðarinnar þar sem almenningi gefst kostur á að vega og meta alla kosti í stöðunni. Lýðræðið verður að fá að hafa sinn framgang. Stóryrðaflaumur með svívirðingum á báða bóga þjónar ekki hagsmunum þjóðarinnar.