utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég skil það þá sem svo að þetta hafi verið meira svona almennar pælingar en skiljanlega setja þeir sem eru að hlusta þetta í samhengi við þessa umræðu sem er mjög hávær og alltumlykjandi hér um aðild Íslands að Evrópusambandinu, enda höfum við fulltrúa í því mikilvæga alþjóðasamstarfi sem við þegar tökum þátt í. Þannig að það er spurning hvernig er hægt að leggja út af þessu með öðrum hætti. En aðeins að atkvæði hv. þingmanns: Hún greinir frá því hér að hún sé óákveðin. Það er auðvitað bara ákveðin afstaða að hún eigi eftir að gera upp hug sinn. En ég myndi telja að kjósendur Flokks fólksins ættu heimtingu á því að fá að vita hver afstaða þeirra kjörnu fulltrúa er til þessa risavaxna máls sem er á dagskrá hér á þessu ári. Þeir eru auðvitað svolítið í myrkrinu varðandi afstöðu sinna kjörnu fulltrúa. Ég spyr hv. þingmann að því hvort hún hyggist upplýsa þjóðina um það hvernig hún mun greiða atkvæði í þessu máli.