157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:47]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég var náttúrlega að ræða einmitt um það að við erum með fulltrúa mjög víða og það skipti máli að vera með þá fulltrúa sem við erum með í alþjóðlegu samstarfi og það er það sem ég var að ræða þar. Það skiptir máli. Ég var svo heppin í fyrra að fá að fara til Bandaríkjanna og kynnast aðeins starfsemi Sameinuðu þjóðanna og ýmislegt fleira. Það opnar augu manns fyrir ansi mörgu þegar maður fer að skoða þetta beint í æð. Hvað varðar mína afstöðu þá veit ég ekki hvort þjóðin eigi endilega heimtingu á að fá að vita. Ég minni á það að ég á nú bara eitt atkvæði í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og allir aðrir. Mitt atkvæði mun ekki breyta öllu. Það fer bara þeim megin sem það fellur og er bara eitt atkvæði þar og ég tel ekki að það muni breyta öllu. Ég held ekki heldur að fólk muni breyta sínum skoðunum og sínu atkvæði (Forseti hringir.) eftir því hvernig ég ákveð að gera það. Kjósendur Flokks fólksins ganga bara frjálsir til þessara kosninga (Forseti hringir.) og þurfa ekkert endilega að vera að fara eftir því sem þingmenn flokksins segja í þessum efnum.