utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ásthildi Lóu Þórsdóttur fyrir sína ræðu. Það verður að segjast að maður fær ekki alltaf tækifæri til að tala við hv. þingmenn Flokks fólksins um utanríkismál. Þau hafa kannski ekki mikið verið áhersluatriði í flokknum. Ég tek undir með hv. þingmanni að raunverulega eru utanríkismál í dag stóru málin, það sem við erum að fást við í heiminum og hvað er að gerast. Smáríki eins og Ísland eiga allt undir utanríkisviðskiptum og við eigum raunverulega allt undir þessu. Við erum meðal þeirra þjóða sem eru hvað háðust utanríkisviðskiptum sem smáríki og allt það. Við þekkjum þessa sögu frá því að við verðum fullvalda og árin þar á eftir, aðildin að NATO 1949 og núna bara eftir átta daga er tvíhliða varnarsamningurinn við Bandaríkin 75 ára. Það væri gaman að vita hjá hæstv. ráðherra málaflokksins, utanríkisráðherra, hvort það sé von á einhverju svona húllumhæi í kringum það.
Mig langaði kannski að spyrja bara beint — og ég verð að segja að ég tek undir með hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur að það er mikilvægt að í svona risamáli eins og þetta er, kannski stærsta málið sem við erum að fást við í þinginu, já, a.m.k. á kjörtímabilinu, hugsa ég, þessi Evrópusambandskosning, þá er mjög eðlilegt að kjósendur landsins sem eru að veita atkvæði sitt hafi vitneskju um hvar málin standa í þessu risastóra (Forseti hringir.) máli eins og aðild að Evrópusambandinu er. Þannig að ég ítreka það sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kom inn á hér áðan með spurningunni: Hver er afstaða hv. þingmanns?