157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:55]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, tímasetningin á atkvæðagreiðslunni, ég bara sé ekkert að þessari tímasetningu, 29. ágúst. Skólarnir eru byrjaðir, það er allt komið í gang. Ef við ætluðum að vera með þetta í september þá eru réttir og annað þess háttar. Það er alltaf eitthvað. Í október geta veður farið að vera slæm, ég meina, það er alltaf eitthvað. 29. ágúst er ekki beint mitt sumar. Þingið hefst t.d. alltaf annan þriðjudag í september, mig minnir að það sé 7. eða 8. september núna. Ég sé ekkert að þessari dagsetningu. Ég held að þetta sé eins og með svo margt, það er hægt að finna eitthvað að öllum tímum. 29. ágúst eru alla vega ekki byrjaðar réttir í sveitum og skólarnir eru byrjaðir og (Gripið fram í.) Eru byrjaðar réttir þá? Alla vega eru skólarnir byrjaðir og lífið komið í fastar skorður (Forseti hringir.) 29. ágúst hjá alla vega velflestum.