utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir fyrirtaks ræðu hér og afbragðs góða skýrslu. Mig langar í stuttu máli að fara yfir mínar hugleiðingar eftir að hafa gluggað í skýrsluna. Þótt ég sé ekki í hv. utanríkismálanefnd, og kannski ekki eins mikið inni í þessu og margir hér, þá langar mig samt að gera atlögu að þessum verkefnum sem skipta okkur verulegu máli sem eru utanríkismál og alþjóðamál. Þau skipta okkur alltaf meira og meira máli, virðulegur forseti. Það er kannski vegna þess að veröldin sem við lifum í tekur sífellt breytingum. Það reynir á alþjóðakerfið eins og við höfum þekkt það. Óvissan á þessum tímapunkti, hvort sem um er að ræða varanlega breytingu eða tímabundna spennu — ég held að við séum bara sammála um það hér inni í þessum þingsal að óvissan núna er meiri en hún hefur verið í seinni tíð í alþjóðamálum. Má þar nefna stöðuna í Mið-Austurlöndum, Úkraínu og Rússlandi, tollamál gagnvart Bandaríkjunum og fleira. Í þessum aðstæðum stendur Ísland frammi fyrir skýru verkefni: Það er, virðulegur forseti, að verja sjálfstæði sitt og fullveldi en vera á sama tíma virkur þátttakandi í alþjóðasamfélaginu. Saga okkar sýnir að það er einmitt í gegnum virk samskipti við aðrar þjóðir sem við höfum byggt upp velsæld og öryggi. En það er ekki nóg að taka þátt. Það skiptir máli hvernig við gerum það.
Við í Framsókn styðjum alþjóðasamvinnu. Við styðjum EES-samninginn, aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamninginn við Bandaríkin ásamt allri þeirri alþjóðasamvinnu sem við erum stoltir þátttakendur í, eins og Sameinuðu þjóðunum, OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Alþjóðabankanum. Við viljum að utanríkispólitík okkar rækti samskiptin við Evrópu en við viljum líka rækta samskiptin við aðra heimshluta. Hagsmunir Íslands liggja víðar, í Norður-Ameríku, Asíu, í nýjum vaxtamörkum og í alþjóðlegu samstarfi víða um heim allan. Eins og segir í Hávamálum: Sá einn veit er víða ratar. Þessi orð eiga jafn vel við um þjóðir og einstaklinga. Ísland má ekki loka sig af í eina átt. Við verðum að leita víðar, rækta fleiri tengsl og byggja upp fjölbreyttari alþjóðasamskipti. Fyrir smáríki eins og Ísland eru alþjóðalög ekki bara stefna. Þau skipta okkur afar miklu máli. Þegar stórveldi láta hagsmuni ráða, eins og við höfum séð á undanförnum árum, þá verða reglur alþjóðakerfisins enn mikilvægari. En á sama tíma verðum við að halda fast í eitt grundvallaratriði: Ísland sem frjálst og fullvalda ríki. Þátttaka í alþjóðasamstarfi má aldrei grafa undan þeirri stöðu, hún á að styrkja hana. Þess vegna skiptir miklu máli að Ísland standi skýrt með alþjóðalögum og réttarríkinu. Þar er stuðningur okkar við Úkraínu lykilatriði. Stríðið í Úkraínu er ekki aðeins átök milli tveggja ríkja. Það er prófsteinn á hvort alþjóðakerfið sé byggt á reglum sem standast. Stuðningur okkar við Úkraínu skiptir miklu máli fyrir framtíð Evrópu og þar með framtíð Íslands.
Varðandi öryggis- og varnarmálin þá langar mig að segja að það er fagnaðarefni að fram hafi verið lögð ný stefna í öryggis- og varnarmálum Íslands. Breytt heimsmynd kallar á skýrari sýn og markvissari aðgerðir. Við búum við nýjan veruleika þar sem öryggi er ekki lengur sjálfgefið heldur þarf að rækta og verja það. Í því samhengi er lykilatriði að efla samstarf okkar innan Atlantshafsbandalagsins. NATO er hornsteinn öryggis Íslands og samskipti við bandalagsríkin skipta sköpum. Við þurfum að styrkja innviði hér á landi til að styðja við samstarfið og tryggja að Ísland sé virkur og áreiðanlegur samstarfsaðili. Ég vil hér sérstaklega leggja áherslu á mikilvægi samskipta við Bandaríkin vegna þess að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna er ein af meginstoðum öryggis okkar. Því er það, virðulegur forseti, ákveðið áhyggjuefni að samskipti utanríkisráðherra við bandarísk stjórnvöld virðast ekki vera eins og æskilegt er að mati þess sem hér stendur, sérstaklega í ljósi þess hversu miklar breytingar hafa orðið á alþjóðavettvangi. Þarna verðum við að gera betur. Ísland á að vera sýnilegt, virkt og í nánu sambandi við sína helstu bandamenn.
Þróunarsamvinna á Íslandi hefur skilað raunverulegum árangri. Hún hefur bætt lífskjör fólks, styrkt samfélög og aukið stöðugleika á viðkvæmum svæðum. Það er mikilvægt að við höldum áfram á þessari braut. Þróunarsamvinna er ekki aðeins góðverk, hún er fjárfesting í friði og stöðugleika til framtíðar. Sérstaklega vil ég leggja áherslu á mikilvægi þess að efla starfsemi skóla Sameinuðu þjóðanna hér á Íslandi. Þeir eru einstakur vettvangur þar sem þekking og reynsla Íslands nýtist alþjóðasamfélaginu, t.d. á sviði orkumála og sjálfbærrar þróunar. Þar liggja mikil tækifæri sem við eigum að nýta betur. Ljóst er að alþjóðlegt viðskiptaumhverfi hefur breyst. Verndarhyggja hefur aukist, tollar og viðskiptahindranir færst í aukana og fríverslun er ekki lengur sjálfgefin forsenda. Þessi þróun hefur bein áhrif á Ísland sem útflutningsdrifið hagkerfi. Því er brýnt að við eflum hagsmunagæslu okkar, sérstaklega í lykilútflutningsgreinum eins og sjávarútvegi, ferðaþjónustu og orkutengdri starfsemi. Við verðum að vera vakandi, sækja fram og tryggja að íslensk fyrirtæki hafi aðgang að mörkuðum. Það krefst bæði sterkrar utanríkisþjónustu og markvissrar stefnu stjórnvalda. Ég sakna þess að sjá ekki meiri áherslu á vaxandi markaðssvæði. Hér má gera betur.
Virðulegur forseti. Að lokum vil ég fjalla aðeins um borgaraþjónustu utanríkisþjónustunnar. Starf hennar er oft vanmetið en gríðarlega mikilvægt. Hún er fyrsta stoð Íslendinga erlendis þegar á reynir, hvort sem um er að ræða neyðartilfelli, ferðalög eða búsetu. Það er því ánægjulegt að sjá þann árangur sem náðst hefur á þessu sviði og mikilvægt að halda áfram að efla þjónustuna. Hún er bein tenging ríkisins við borgarana og skiptir sköpum fyrir öryggi þeirra og velferð.
Virðulegur forseti. Ég vil hér að lokum þakka fyrir þessa skýrslu utanríkisráðherra. Hún er yfirgripsmikil og varpar ljósi á marga mikilvæga þætti. Íslensk utanríkisstefna hefur reynst vera framsýn og stutt við fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar. Aðild Íslands að Evrópusambandinu mun draga úr sérstöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Ísland mun ekki semja sjálft um sína hagsmuni heldur munum við framselja það til Evrópusambandsins. Við í Framsókn teljum að það muni veikja okkar stöðu. Hagsmunir Íslands liggja víða, tækifærin eru víða og framtíðin krefst þess að við horfum víða. Ísland á ekki að vera þjóð sem horfir aðeins í eina átt heldur þjóð sem ratar víðs vegar um heiminn.